motokross-lokahof-gyda-dogg-msi-1
Lokahóf Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands fór fram í Turninum í Kópavogi um helgina og tóku Elmar Darri Vilhelmsson og Gyða Dögg Heiðarsdóttir á móti verðlaunum fyrir glæsilegan árangur sumarsins.
Elmar Darri sem var að keyra unglingaflokkinn í fyrsta sinn í sumar gerði sig lítið fyrir og sigraði uppskar Íslandsmeistaratitil í flokknum.
Gyða Dögg varði Íslandsmeistaratitil sinn í kvennaflokki og var einnig valin akstursmaður ársins hjá MSÍ í kvennaflokki.
Stórkostlegur árangur hjá þessu flotta unga fólki og verður virkilega gaman að fylgjast með þeim í mótokrossinu á næstu árum.
mrm
---
Mynd með frétt: Gyða Dögg með viðurkenningu sem aksturskona ársins.
Mynd fyrir neðan: Gyða Dögg (í miðju) og Elmar Darri (í miðju) með sigurlaun sín.
Ljósmyndir: Umf. Selfoss/Magnús Ragnar