ISI-logo
Fimmtudaginn 4. desember mun ÍSÍ bjóða upp á hádegisfund um fjölmiðlamál og fer fundurinn fram í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal.
Umfjöllunarefnið er fjölmiðlafulltrúi, fjölmiðlatengsl og markvisst kynningarstarf. Fundurinn er opin öllum áhugasömum og gagnast sérstaklega þeim aðilum sem vinna við kynningarstarf í íþróttafélögum eða í sérsamböndum.
Ómar Smárason leyfis- og markaðsstjóri KSÍ mun leiða okkur í sannleika um hvað fjölmiðlafulltrúi sérsambands/félags gerir, hvernig hann kemst að í fjölmiðlum og hvernig setja á fram efni svo að eitthvað sé nefnt. Þá mun Eggert Skúlason margreyndur fjölmiðlamaður og fjölmiðlafulltrúi ræða um hvernig vinna á fréttatilkynningu, hvernig kemur maður upplýsingum á framfæri og hvenær er tilefni til að setja upp blaðamannafund.
Fundinum stjórnar Viðar Garðarsson. Skráning er á skraning@isi.is og fundurinn verður sendur út á netinu.