Hannes Jón Jónsson
Hannes Jón Jónsson mun taka við sem þjálfari meistaraflokks Selfoss eftir þetta keppnistímabil, en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Selfoss nú í gær. Auk þess að þjálfa meistaraflokk mun hann verða framkvæmdastjóri handknattleiksakademíunnar sem deildin rekur ásamt Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Hannes Jón er uppalinn hjá Val en lék m.a. með Selfoss á árunum 2001-2003. Hann fór út í atvinnumennsku og lék með liðunum Ajax København og Fredericia í Danmörku, Elverum í Noregi og Hannover-Burgdorf og THSV Eisenach í Þýskalandi. Auk þess á hann 36 leiki að baki með íslenska landsliðinu. Frá árinu 2015 hefur hann verið þjálfari West Wien í Austurríki.
Handknattleiksdeild Selfoss er gríðarlega ánægð með að hafa náð samningi við Hannes sem mun halda áfram því metnaðarfulla starfi sem hefur verið í gangi á Selfossi undanfarin ár. Deildin er jafnframt ánægð að geta tilkynnt þessa ráðningu með góðum fyrirvara sem sýnir metnað til að halda stöðugleika og áframhaldandi uppbyggingu í starfinu.
Við undirritun samnings sagði Hannes Jón að starfið á Selfossi væri gríðarlega spennandi og mikil áskorun sem hann hlakkar til að takast á við og bætti við: „Það er greinilegt að þar hefur margt mjög gott verið gert síðastliðin ár og hugmyndafræðin í uppbyggingarstarfinu er að skila leikmönnum í fremstu röð. Félagið leggur metnað í að halda áfram að gera vel, það verður gaman að fá að taka þátt í því.“
Mynd: Hannes Jón Jónsson.
West Wien