Merki HSK - Logo
HSK-mótið í taekwondo var haldið í íþróttahúsinu Baulu við Sunnulækjarskóla 9. desember sl. Keppt var í þremur greinum á mótinu, í formi, bardaga og þrautabraut.
Mótið fór mjög vel fram og kepptu keppendur frá fjórum aðildarfélögum HSK á mótinu. Flestir voru frá Selfossi, en einnig frá Heklu, Dímon og Suðra. Gaman var að sjá keppendur frá Suðra, en þetta mun vera í fyrsta skipti að keppendur frá félagi fatlaðra á Suðurlandi taka þátt í taekwondomóti sambandsins.
Úrslit frá mótinu eru á www.hsk.is. Þar má einnig sjá fleiri myndir frá mótinu.
Úr fréttabréfi HSK