Hjálmar Vilhelm með frábæran árangur á NM í tugþraut.

Hjálmar Vilhelm í hástökki
Hjálmar Vilhelm í hástökki

Hjálmar Vilhelm Rúnarsson hafnaði í 5.sæti af 9 keppendum í tugþraut í flokki U-18 ára á Norðurlandameistaramótinu í fjölþraut sem fram fór á ÍR-vellinum um helgina. Hjálmar Vilhelm sem er fæddur 2008 og er þar af leiðandi á yngra aldursári í flokknum náði flottri tugþraut um helgina þegar hann náði í 6161stig. Hæst ber að nefna frábært spjótkast þegar hann kastaði lengst allra með kast uppá 56,01m sem er persónuleg bæting hjá honum í spjótkastinu, einnig hljóp hann frábært 100m hlaup þegar hann hljóp á 11,44sekúndum.

Virkilega góður árangur hjá Hjálmari sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni, til gamans má nefna að þá stóð hann efst af sínum jafnöldrum í þrautinni þeim sem fæddir eru 2008.

Árangur Hjálmars í einstaka greinum var eftirfarandi:

100m | 11,44 sek. (+2,6) | 765 stig

Langstökk | 6,22m (+3,3) | 635 stig

Kúla | 13,38m | 690 stig

Hástökk | 1,81m | 636 stig

400m | 54,99 sek | 599 stig

110m grind | 16,69 (+4,7) | 657 stig

Kringla | 33,34m | 531 stig

Stöng | 3,20m | 406 stig

Spjót | 56,01 pb. | 678 stig

1500m | 4:59,26 mín. pb. | 564 stig