Lífshlaupið 2016
Nú styttist í að nýtt lífshlaupsár hefjist, þann 6. febrúar. Opnað var fyrir skráningu miðvikudaginn 23. janúar á vefsíðu Lífshlaupsins.
Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa. Á síðasta ári voru yfir 15 þúsund virkir þátttakendur í samtals um 500 skólum og vinnustöðum. Verkefnið miðar að því að hvetja landsmenn til að huga að daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er.
Eftirfarandi keppnir eru hluti af Lífshlaupinu:
- Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur í febrúar
- Framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri í tvær vikur í febrúar
- Vinnustaðakeppni í þrjár vikur í febrúar
- Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið.