Handbolti - Ragnarsmótið Elvar Örn
Selfyssingar eiga enn eftir að ná í stig á heimavelli í Olís-deild karla í handbolta en liðið tapaði í gær fyrir Stjörnunni, 24-25, eftir mjög kaflaskiptan leik.
Selfyssingar litu mjög vel út í fyrri hálfleik, spiluðu mjög fína vörn og höfðu undirtökin allan hálfleikinn. Staðan var 14-10 í leikhléi og munurinn hefði getað verið meiri því nokkur hraðaupphlaup og vítaköst fóru í súginn hjá Selfyssingum.
Stjarnan skoraði fyrstu fjögur mörkin í seinni hálfleik, jafnaði 14-14, og tók forystuna í kjölfarið. Selfyssingar fundu enga leið framhjá Sveinbirni Péturssyni markverði Stjörnunnar á tímabili og Stjarnan náði mest fjögurra marka forskoti, 19-23, þegar sex mínútur voru eftir.
Lokamínúturnar urðu hins vegar spennandi og Einar Sverrisson náði að jafna fyrir Selfoss, 24-24, þegar tuttugu sekúndur voru eftir. Stjarnan átti hins vegar síðustu sókn leiksins og skoraði sigurmarkið þegar fjórar sekúndur voru eftir af leiknum.
Fjallað er um leikinn á vef Sunnlenska.is.
Elvar Örn Jónsson var markahæstur Selfyssinga með 7/2 mörk og Einar Sverrisson skoraði 6. Andri Már Sveinsson skoraði 5/2, Guðni Ingvarsson og Guðjón Ágústsson 2 og þeir Hergeir Grímsson og Alexander Már Egan skoruðu 1 mark hvor.
Grétar Ari Guðjónsson átti fínan leik og varði 21/1 skot í marki Selfoss.
Næsti leikur strákanna er á útivelli gegn Gróttu fimmtudaginn 20. október kl. 19:30.
Elvar Örn var markahæstur.
Ljósmynd: Umf. Selfoss/Jóhannes Ásgeir Eiríksson