Atli Ævar Ingólfsson
Selfyssingar töpuðu fyrir FH í Hleðsluhöllinni í kvöld með sex mörkum, 31-37.
Jafnræði var með liðunum fram á 12. mínútu en þá komust FH þremur mörkum yfir, úr 6-6 í 6-9. Munurinn hélst 2-4 mörk út fyrri hálfleik og staðan í leikhléi 14-18. Lítið gekk hjá Selfyssingum í seinni hálfleik. FH byggðu upp forystu og náðu mest átta marka forskoti. Selfyssingar minnkuðu muninn niður í sex mörk fyrir leikslok en sigur FH-inga var aldrei í hættu. Lokatölur 31-37.
Mörk Selfoss: Atli Ævar Ingólfsson 10, Hergeir Grímsson 6/4, Haukur Þrastarson 4, Guðni Ingvarsson 3, Magnús Öder Einarsson 2, Reynir Freyr Sveinsson 2, Alexander Már Egan 2, Ísak Gústafsson 1, Guðjón Baldur Ómarsson 1.
Varin skot: Sölvi Ólafsson 11 (30%) og Einar Baldvin Baldvinsson 3 (20%)
Nánar er fjallað um leikinn á Vísir.is og Sunnlenska.is.
Næsti leikur hjá strákunum er á laugardaginn gegn ÍR í Austurbergi kl 16.00. Sama dag heimsækja stelpurnar Fram U.
Atli Ævar var besti maður vallarins í kvöld með 10 mörk.
Sunnlenska.is / Guðmundur Karl