Frjálsar - HSK m.þjálfara
Liðsmenn HSK/Selfoss unnu glæsilegan sigur í bikarkeppni 15 ára og yngri sem fram fór á Laugardalsvellinum sl. sunnudag. Eftir jafna og spennandi keppni endaði liðið í efsta sæti með 185,5 stig en næsta lið var með 184 stig og B-liðið HSK/Selfoss varð svo í fjórða sæti aðeins 18 stigum á eftir þriðja sætinu.
Stelpurnar í A-liðinu sigruðu í kvennakeppninni og B-liðið varð í fjórða sæti en strákarnir í A-liðinu urðu í öðru sæti og B-liðið í fimmta sæti.
Samtals unnust sex bikarmeistaratitlar í einstaklingsgreinum
Eva María Baldursdóttir Hástökk 1,56 m
Helga Margrét Óskarsdóttir Spjótkast (400 gr) 39,30 m HSK met
Sólveig Þóra Þorsteinsdóttir Langstökk 4,87 m
Dagur Fannar Einarsson 1500 m 4:45,96 mín
Hildur Helga Einarsdóttir Kúluvarp (3,0 kg) 11,85 m
Marta María Bozovic Siljudóttir Kringlukast (600 gr) 28,09 m
Einnig urðu krakkarnir sjö sinnum í öðru sæti og sex sinnum í þriðja sæti.
Stemmingin í hópnum var æðisleg og mjög mikið var um bætingar hjá krökkunum
Dagur Fannar Einarsson 4:45,96 mín 1500 metra hlaup
Gestur Gunnarsson 12,53 sek 100 metra hlaup
Hákon Birkir Grétarsson 14,83 sek 100 metra grind (84 cm)
Jónas Grétarsson 57,83 sek 400 metra hlaup
Tryggvi Þórisson 1,69 m Hástökk
Bríet Bragadóttir 64,48 sek 400 metra hlaup
Helga Margrét Óskarsdóttir 39,30 m Spjótkast (400 gr)
Hildur Helga Einarsdóttir 11,85 m Kúluvarp (3,0 kg)
Lára Björk Pétursdóttir 5:28,30 mín 1500 metra hlaup
Marta María Bozovic Siljudóttir 28,09 m Kringlukast (600 gr)
Frábær árangur hjá krökkunum og spennandi tímar framundan hjá þeim.
Öll úrslit mótsins má finna á Þór - Mótaforriti FRÍ.
Ljósmyndir frá mótinu má finna á ljósmyndavef HSK.
---
Liðsmen HSK/Selfoss ásamt þjálfurum voru alsæl á loknu góðu móti
Ljósmynd frá foreldrum HSK/Selfoss.