Selfoss_merki_nytt
Þjálfararáðstefna Árborgar verður haldin í Sunnulækjarskóla á Selfossi föstudaginn 15. og laugardaginn 16. janúar 2016. Þema ráðstefnunnar í ár er markmið, skipulag og vellíðan.
Dagskrá þjálfararáðstefnu Árborgar 2015-2016
Á ráðstefnuna er boðið öllum þjálfurum sem starfa á sambandssvæði HSK og eru yfir 18 ára aldri. Mikil áhersla er lögð á það af vegum sveitarfélagsins að allir þjálfarar í sveitarfélaginu mæti á ráðstefnuna. En rétt er að geta þess að ráðstefnan er öllum opin þó sérstök áhersla sé lögð að sunnlenska þjálfara.
Þátttökugjald á ráðstefnuna er kr. 5.000 og er allt innifalið í verðinu.
Allir sem koma að þjálfun íþrótta á Suðurlandi eru hvattir til að taka þátt í skemmtilegri og fræðandi ráðstefnu en þess má geta að ráðstefnan er metin til endurmenntunar þjálfara á vegum sérsambanda.
Skráning fer fram í netfanginu umfs@umfs.is og lýkur fimmtudaginn 14. janúar.
Nánari upplýsingar veitir Gissur Jónsson, framkvæmdastjóri Umf. Selfoss í síma 894-5070.