Jólahappadrætti unglingaráðs (1)
Mánudag 21. desember síðastliðinn var dregið í jólahappadrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar Selfoss. Aðalvinningurinn, 48“ led/smart sjónvarp frá Árvirkjanum, kom á miða númer 812 sem er í eigu Ingibjargar Jóhannesdóttur á Selfossi. Það var Jóhann Konráðsson verslunarstjóri í Árvirkjanum sem afhenti Ingibjörg sjónvarpið í verslun Árvirkjans milli hátíða.
Á myndinni er Ingibjörg ásamt Jóhanni og Selmu Sigurjónsdóttur úr unglingaráði knattspyrnudeildar.
Hægt er að vitja vinninga á skrifstofutíma í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, að Engjavegi 50.
Vinningsnúmer í jólahappdrættinu