Önnur umferð í Íslandsmótinu í motocross

Flokkurinn MX1
Flokkurinn MX1

Önnur umferð í Íslandsmótinu í motocrossi fór fram 29. júní síðastliðinn. Mótið var haldið á vegum VÍFA á Akranesi, 73 keppendur voru skráðir til leiks. Iðkenndur UMFS náðu góðum árangri á mótinu. Alexendar Adam Kuc varð í þriðja sæti í flokknum MX1, Eric Máni Guðmundsson sigraði MX2 flokkinn ,Ásta Petrea Hannesdóttir endaði í þriðja sæti í kvenna flokk.

Þriðja umferð Íslandsmótsins fer svo fram á svæði KKA á Akureyri laugardaginn 20. júlí n.k.