Alexander Adam og Eric Máni valdir í landsliðið í motocrossi

Motocross of Nation í Ernée í Frakklandi
Motocross of Nation í Ernée í Frakklandi

Alexander Adam Kuc og Eric Máni Guðmundsson hafa verið valdir til að taka þátt í landsliðsverkefnum á vegum Snjósleða- og mótorhjólsamband Íslands.

Alexander Adam var valin landslið Íslands fyrir MXoN en liðið skipa þeir Eiður Orri Pálmarsson sem mun keppa í MX2, Máni Freyr Pétursson keppir í MX1 og Alexander Adam Kuc í MX OPEN. Ungt og efnilegt lið sem þegar hefur safnað mikilli reynslu í bankann og verður gaman að fylgjast með þeim gera enn betur í ár.

Keppnin í ár fer fram 4-6 október í MATTERLEY BASIN í Bretlandi.

 

Eric Máni var valin landslið Íslands fyrir Coupe de l'Avenir. Keppnin er haldin árlega í Belgíu fyrir ökumenn undir 21 árs, 15 þjóðir taka þátt árlega og má hver þjóð senda 3 lið skipuð 3 ökumönnum til keppni. Ísland sendir í fyrsta skipti þrjú fullskipuð lið til keppni. Eric Máni Guðmundsson keppir í MX 2.

Keppnin fer fram 28-29 september í Belgíu.  

Framtíðin í íslensku motocrossi er sannarlega björt og verður gaman að fylgjast með ökumönnunum okkar keppa á meðal þeirra bestu. 

Tekið af vef MSÍ