24.10.2014
Í gær var dregið í 16 liða úrslit kvenna og 32 liða úrslit karla í Coca Cola bikarnum. Jafnframt var skrifað undir samstarfssamning við Vífilfell til næstu þriggja ára en keppnin mun áfram bera heitið Coca Cola bikarinn.Stelpurnar okkar sækja FH heim en önnur lið sem mætast í 16 liða úrslitum kvenna eru: Fram-Grótta, Fjölnir-Fylkir, HK-KA/Þór, Afturelding-ÍR, ÍBV 2-Haukar og Stjarnan-ÍBV.
24.10.2014
Það verða heiðursmennirnir Sverrir Þór Sverrisson og Guðjón Davíð Karlsson sem stýra herrakvöldi knattspyrnudeildar sem fram fer föstudaginn 7.
24.10.2014
Fyrsta bikarmót vetrarins í taekwondo verður haldið í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi helgina 25.-26. október 2014.Mótið hefst kl.
23.10.2014
Evrópumótinu í hópfimleikum lauk á laugardaginn en mótið var haldið í Laugardalshöll 15.-18. október. Selfyssingar áttu sína fulltrúa í landsliðunum og stóðu þau sig mjög vel svo eftir var tekið.Kvennalið Íslands endaði í öðru sæti eftir mjög harða keppni við lið Svía en bæði lið voru afburðargóð og gat keppnin farið á hvern veginn sem er.
22.10.2014
Einar Ottó Antonsson, reynslumesti leikmaður Selfoss, hefur skrifað undir eins árs samning við knattspyrnudeild Selfoss og mun því spila áfram með Selfyssingum í 1.
22.10.2014
Knattspyrnudeild Selfoss leitar að aðalþjálfara í eldri og yngri flokka félagsins.Selfoss er metnaðarfullt félag sem leggur mikið upp úr þjálfun yngri flokka og uppbyggingu leikmanna ásamt því að uppbyggingu félagsins er höfð í hávegum.Umsækjendur þurfa að hafa reynslu af þjálfun og er krafist viðeigandi menntunar.Viðkomandi þjálfari þarf að geta hafið störf sem fyrst.Áhugasömum er bent á að hafa samband við yfirþjálfara knattspyrnudeildarinnar Gunnar Borgþórsson á netfangið
21.10.2014
Herrakvöld knattspyrnudeildar Selfoss verður haldið í Hvítahúsinu föstudaginn 7. nóvember.Reiddur verður fram dýrindis matur, auk skemmtiatriða á borð við happadrættið og hið geysivinsæla pakkauppboð.
21.10.2014
Guðmunda Brynja Óladóttir, fyrirliði kvennaliðs Selfoss í knattspyrnu, og stuðningsmenn kvennaliðs Selfoss í Pepsi-deildinni fengu verðlaun á lokahófi KSÍ sem fram fór í höfuðstöðvum sambandsins í gær.
20.10.2014
Í kvöld verður haldin móttaka til handa landsliðsfólkinu okkar sem stóð sig svo vel á Evrópumótinu í hópfimleikum sem lauk á laugardaginn 18.
20.10.2014
Það gengur vel hjá stelpunum í meistaraflokki kvenna en þær sigruðu KA/Þór um helgina. Eftir sigurinn eru þær í 6. sæti deildarinnar með fimm stig eftir fimm leiki.KA/Þór byrjaði leikinn betur, var einu til tveimur mörkum yfir í upphafi leiks en lið Selfoss fór fljótlega í gang og jafnt var á flestum tölum seinni hluta fyrri hálfleiksins.