27.02.2018
Stelpurnar tryggðu sér í gær sæti í Olísdeildinni að ári eftir sigur á Gróttu, 26-21. Selfoss er nú öruggt í 6.sæti deildarinnar, sem er jafnframt besti árangur kvennaliðs á Selfossi frá upphafi ().Mikið var í húfi fyrir leik enda voru bæði lið að berjast í neðri hluta deildarinnar.
27.02.2018
Karlalið Selfoss sigraði Gróttu örugglega, 38-24 í Olísdeild karla í gær. Leikurinn varð aldrei spennandi og var hálf skrítinn á köflum.Selfyssingar náðu fljótt yfirhöndina á leiknum og Gróttumenn sáu aldrei til sólar, staðan var 21-11 í hálfleik.
23.02.2018
Knattspyrnudeild Umf. Selfoss og Hótel Selfoss skrifuðu í dag, föstudaginn 23. febrúar, undir nýjan samstarfssamning sem gildir út árið 2019.Hótel Selfoss hefur í gegnum árin verið dyggur stuðningsaðilli knattspyrnudeildar og er gríðarleg ánægja með áframhaldandi samstarf.Með þessum samning mum Hótel Selfoss halda áfram að styrkja frábært barna- og unglingastarf, ásamt starfi í eldri flokkum knattspyrnudeildarinar næstu tvö árin.---Mynd: Ragnar Bogason hótelstjóri, Jón Steindór Sveinsson formaður knattspyrnudeildar ásamt Helgu Guðnýju Pálsdóttur markaðsstjóra Hótel Selfoss.
Ljósmynd: Umf.
23.02.2018
Mánudaginn næstkomandi verður sannkölluð , en þá mætast Selfoss og Grótta í meistaraflokki kvenna og karla. Stelpurnar eiga fyrri leikinn kl 18:00 og mæta þær Gróttu í hörkuslag um að halda sér uppi í Olísdeildinni að ári, en Selfoss er nú í 6.sæti með 7 stig en Grótta í 7.sæti með 4 stig.
22.02.2018
Ný námskeið í hefjast fimmtudaginn 15. mars og föstudaginn 16. mars. Kennt er einu sinni í viku í níu vikur.Eftirfarandi námskeið eru í boði.Fimmtudaga
Klukkan 17:15 námskeið 5 (aukahópur, fer eftir fjölda)
Klukkan 18:00 námskeið 4 (ca 2-4 ára)
Klukkan 18:45 námskeið 5 (ca 4-6 ára)
Klukkan 19:30 Byrjendur (ca 2-7 mánaða) Föstudaga
Kl 15:45 sundskóli (börn fædd 2012 og eldri án foreldra ofaní laug)
Kl 16:30 námskeið 3 (ca 1-2 ára)
Kl 17:15 námskeið 4 (ca 2-4 ára)
Kl 18:00 námskeið 5 (ca.
21.02.2018
Eins og flestir vita mun karlalið Selfoss mæta Fram í undanúrslitum Coca-cola bikarnum í Final4 eins og það er kallað. Miðasala er nú hafin á leikinn sem fram fer föstudaginn 9.mars kl 19:30.
21.02.2018
Sextán keppendur frá Júdódeild Selfoss kepptu á afmælismóti Júdósambands Íslands fyrir keppendur yngri en 21 árs. Um 90 keppendur frá níu félögum kepptu á mótinu og keppendur frá Selfossi flest verðlaun eða sjö gull, tvö silfur og fimm brons.Mörg glæsileg köst og fastatök sáust á mótinu.
20.02.2018
Selfoss tapaði 28-23 þegar liðið heimsótti ÍBV til Vestmannaeyja í Olísdeild kvenna í kvöld.Leikurinn var jafn fyrstu mínúturnar en Eyjakonur náðu forystu undir miðjum fyrri hálfleik og leiddu allan leikinn.
19.02.2018
Þorsteinn Ragnar Guðnason, keppandi Selfoss, gerði góða hluti um helgina á öðru bikarmóti TKÍ í Pomsae (formum).Hann nældi sér í gullverðlaun í hópaformum með þeim Eyþóri og Halldóri úr Ármanni, hann fékk silfurverðlaun í einstaklingsformum og bronsverðlaun í paraformum með Vigdísi úr Aftureldingu.Taekwondo deild Selfoss óskar Þorsteini Ragnari til hamingju með þessa flottu frammistöðu!---Ljósmyndir: Umf.
18.02.2018
Selfoss sigraði Hauka 26-25 í hörkuleik í Olísdeildinni eftir dramatískan lokakafla, ekki þann fyrsta í vetur.Selfyssingar byrjuðu leikinn betur og komust 11-7 þegar um 20 mínútur voru búnar af leiknum.