Fimleikar - Blandað lið Selfoss Keppni
Í áskorun frá íþróttahreyfingunni er fagnað þeim tilslökunum sem gerðar eru í nýrri reglugerð um íþróttastarf en lýst þungum áhyggjum af unglingunum á framhaldsskólaaldri.
Hér að neðan er áskorun frá íþróttahéruðunum vegna íþróttastarfs fyrir iðkendur á framhaldsskólaaldri. Áskorunin var send til forsætisráðherra ásamt ráðherrar heilbrigðismála, menntamál, félagsmála og fjármála.
Áskorun íþróttahéraða
Íþróttahreyfingin fagnar þeim tilslökunum sem gerðar eru í nýrri reglugerð um íþróttastarf en lýsir þungum áhyggjum af unglingunum á framhaldsskólaaldri. Þessi hópur virðist hafa gleymst þegar kemur að útfærslu á takmörkunum hverju sinni.
Raddir unga fólksins okkar eru því miður of fáar og þegar við getum ekki hvatt þau til íþróttaiðkunar í jafn langan tíma og raun ber vitni þá höfum við miklar áhyggjur af brottfalli þeirra sem myndi auka líkur á frávikshegðun með tilheyrandi vandamálum.
Íþróttahéruðin hvetja stjórnvöld til að endurskoða afstöðu sína til þessa viðkvæma hóps í þeim afléttingum sem nú þegar eru samþykktar og hleypa fyrrnefndum aldurshópi inn í íþrótta- og æskulýðsstarf á ný, með og án snertinga og með þeim fjöldatakmörkunum sem gilda fyrir íþróttastarf.
Undir áskorunina skrifa 24 íþróttahéruð hringinn í kringum landið, meðal annars Héraðssambandið Skarphéðinn.
Áskorunin á vef HSK
---
Mynd úr safni Umf. Selfoss/Inga Heiða