fullor
Sunnudaginn 13. ágúst ætlar fimleikadeildin í samstarfi við Sumar á Selfossi að halda söfnunaræfingu og mun allur peningurinn renna til uppbyggingar á „fjölskyldusvæði* á Selfossi. Æfingin er í Baulu, íþróttahúsi Sunnulækjarskóla, frá 10:30-12:00 og eru allir velkomnir ungir sem aldnir. 1.000 krónur inn en að sjálfsögðu tökum við á móti frjálsum framlögum.
Sameinumst, söfnum og höfum gaman saman.
Fimleikaþjálfarar deildarinnar taka vel á móti ykkur, ekki vera feimin
Athugið að börn 5 ára og yngri eru á ábyrgð forráðamanna.
Það verður posi á staðnum.