Hannes Höskulds áfram á Selfossi

Hannes Höskuldsson hefur framlengt samning sinn við Handknattleiksdeild Umf. Selfoss um tvö ár.

Fyrirliðinn Hannes Höskulds er 25 ára vinstri hornamaður sem alinn er upp á parketinu á Selfossi. Hannes var fastamaður í Íslandsmeistaraliði Selfoss vorið 2019 og hefur leikið með meistaraflokki allar götur síðan.

Það er frábært fyrir okkur og frábært fyrir meistaraflokk að hafa leiðtoga eins og Hannes með sér í liði.