ÍSÍ | Þjálfaramenntun

ISI-logo
ISI-logo

 

Haustfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 18. september nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar.

Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda.

Þátttökugjald á 1. stig er kr. 25.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin.

Þátttökugjald á 2. stig er kr. 22.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin.

Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 15. september nk. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Til þátttöku á 2. stigi þarf að hafa lokið 1. stigi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari.

Skráning í haustfjarnám þjálfaramenntunar ÍSÍ 2017

 

Nánari upplýsingar um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 / 863-1399 og á netfanginu vidar@isi.is.