selfosslogo
Sunnudaginn 3. september hefjum við æfingar í íþróttaskólanum.
Æfingar fara fram í tveimur hópum, þeir eru eftirfarandi:
Hópur 1: Börn fædd 2015-2016 eru frá kl. 10:00-10:50.
Hópur 2: Börn fædd 2012-2014 eru frá kl. 11:00-11:50.
Æfingar eru alla sunnudaga frá og með 3. september til 19. nóvember alls tólf skipti.
Allir sem ætla að mæta verða að skrá sig https://selfoss.felog.is/
Gengið er frá skráningu í gegnum skráningar- og greiðslukerfið Nóra á slóðinni selfoss.felog.is og verða allir að skrá sig þar.
Námskeiðið kostar 15.000 krónur en í boði er 50% systkinaafsláttur. Til að nýta hann verður að hafa samband við framkvæmdastjóra deildarinnar í netfangið fimleikar@umfs.is.
Þjálfarar eru Berglind Elíasdóttir og Unnur Þórisdóttir ásamt aðstoðarþjálfurum.
Hlökkum til að sjá ykkur.