Meistaraflokkarnir eru komnir í sumarfrí, alla vega frá keppni. Hjörtur Leó fékk til sín fulltrúa beggja liða í Selfoss hlaðvarpið á dögunum til að gera upp veturinn og létt inn í framtíðina.
Í fyrri hlutanum koma þeir Þórir Ólafsson, þjálfari mfl kk og goðsögn í lifandi lífi, Jón Þórarinn Þorsteinsson og Hannes Höskuldsson leikmenn Selfoss. Í seinni hlutanum faum við svo Eyþór Lárusson þjálfara mfl kvk og með honum mættu Tinna Sigurrós Traustadóttir og Hulda Dís Þrastardóttir.
Skellið þessu í tækið og hlustið, aldrei að vita nema þið lærið eitthvað nýtt.
Hægt er að hlusta HÉR.