MÍ 11-14 Selfyssingar
Aldursflokkamót HSK í frjálsíþróttum fyrir keppendur 11–14 ára var haldið í Þorlákshöfn sl. sunnudag, samhliða héraðsleikunum. 79 keppendur frá 10 félögum voru skráðir.
Eitt HSK met var sett á mótinu, en Hákon Birkir Grétarsson, Selfossi, bætti HSK metið í 60 metra grindahlaupi. Hann hljóp á 9,64 sek og bætti met Styrmis Dan Steinunnarsonar sem var 10,01 sek.
Keppt var um gull, silfur og brons í öllum greinum og þá var keppt um bikar fyrir stigahæsta félagið. Selfyssingar höfðu mikla yfirburði í stigakeppninni og unnu örugglega með 430 stig. Þór varð í öðru með 135 stig og Hrunamenn í því þriðja með 111 stig.
Heildarúrslit eru á Þór - Mótaforriti FRÍ en hér að neðan má sjá úrslitin í stigakeppni félaga.
Myndir frá mótinu eru á heimasíðu HSK.
Stig félaga:
- Selfoss 430 stig
- Þór 135 stig
- Hrunamenn 111 stig
- Dímon 83,5 stig
- Hekla 54 stig
- Laugdælir 50 stig
- Garpur 31 stig
- Biskupst. 29 stig
- Gnúpverjar 25 stig
- Þjótandi 10 stig
---
Selfyssingar unnu yfirburðarsigur á mótinu.
Ljósmynd: HSK/Guðmunda Ólafsdóttir