Svavar Vignisson nýr þjálfari meistaraflokks kvenna

Svavar Vignisson, Þórir Haraldsson, undirskrift
Svavar Vignisson, Þórir Haraldsson, undirskrift

Eyjamaðurinn Svavar Vignisson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna. Svavar, sem er 48 ára gamall, hefur bæði spilað með og þjálfað ÍBV. Hann var leikmaður liðsins frá 1990-2006 með tveggja ára viðkomu á meginlandinu, í FH. Hann þjálfaði meistaraflokk ÍBV karla frá 2008-2010 og meistaraflokk kvenna frá 2010-2015.

"Ég er mjög spenntur að taka þjálfaraskóna af hillunni og vinna með faglegu teymi á Selfossi.  Selfoss hefur sýnt að þau kunna að búa til frábært handboltafólk bæði karla- og kvennamegin og vonandi tekst okkur teyminu að byggja á því góða starfi sem verið hefur á Selfossi."

Handknattleiksdeildin er gríðarlega ánægð með þessa ráðningu á Svavari og bindur miklar vonir við að hann verði mikilvægur hluti af áframhaldandi uppbyggingu kvennahandbolta á Selfossi. Rúnar Hjálmarsson mun halda áfram sem aðstoðarþjálfari liðsins líkt og undanfarin ár, ásamt því að vera styrktarþjálfari liðsins. Um leið þakkar handknattleiksdeildin Erni Þrastarsyni, fráfarandi þjálfara, fyrir gott starf í þeirri uppbyggingu sem staðið hefur yfir.  Örn mun snúa sér að öðrum störfum innan deildarinnar. 

 


Mynd: Svavar Vignisson nýráðinn þjálfari Selfoss og Þórir Haraldsson formaður handknattleiksdeildar.
Umf. Selfoss / ÁÞG