Eva María stökk yfir 1.80m í hástökki

Eva María Baldursdóttir með frábæra bætingu í hástökki
Eva María Baldursdóttir með frábæra bætingu í hástökki

Eva María Baldurssdóttir Umf. Selfossi var með glæsilega opnun í hástökki um helgina er hún stökk yfir 1.80m í hástökki og sigraði með yfirburðum. Hún bætti besta árangur sinn um 2 cm og setti HSK met í flokki 19-22 ára. Þessi árangur hennar er besti árangur ársins í hástökki og fjórði besti árangur í hástökki kvenna frá upphafi. Árangrinum náði hún á mótií Bandaríkjunum sem heitir PSU Challenge og er á vegum Penn State. Eva María hefur verið að glíma við meiðsli í dágóðan tíma og þessi árangur því virkilega eftirtektarverður. Hún stundar háskólanám og æfingar í Bandaríkjunum og verður spennandi að fylgjast með henni á innanhússtímabilinu.