Egill og Gumma íþróttafólk Árborgar 2013
Knattspyrnukonan Guðmunda Brynja Óladóttir og júdókappinn Egill Blöndal, bæði úr Umf. Selfoss, voru útnefnd íþróttafólk Árborgar 2013 á uppskeruhátíð íþrótta- og menningarnefndar Árborgar sem fram fór í gær. Eftirfarandi frétt er af heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar.
Uppskeruhátíð íþrótta- og menningarnefndar Árborgar (ÍMÁ) var haldin í sal Fsu mánudaginn 30. desember. Afhentar voru viðurkenningar fyrir góðan íþróttaárangur á árinu 2013 og má með sanni segja að fjöldi viðurkenningar hafi komið á óvart en árangurinn á árinu var mjög góður hjá íþróttafólkinu.
Guðmunda Brynja Óladóttir, knattspyrnukona og Egill Blöndal, júdómaður fengu nafnbótina íþróttakona og íþróttakarl Árborgar 2013.
Mótocrossdeild Umf. Selfoss fékk hvatningarverðlaun íþrótta- og menningarnefndar en uppbyggingarstarf deildarinnar á sl. árum er eftirtektavert.
Atvinnukeppnismenn úr Sveitarfélaginu Árborg voru heiðraðir og fjöldi yngri iðkenda fengu viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu.
Íþróttafélögin deildu einnig út styrkjum úr afrekssjóðum sem sveitarfélagið leggur pening í samkvæmt samningum. Gaman var að sjá hversu margir mættu en húsfyllir var í hátíðarsal FSu og ekki sæti fyrir alla. Íþrótta- og menningarnefnd vill óska öllum gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir ánægjulegt og viðburðaríkt ár.
Jafnframt er ítarlega fjallað um hátíðina á vef Sunnlenska.is.
---
Egill Blöndal og Guðmunda Brynja með verðlaun sín.
Mynd: umfs.is/Gissur