Selfoss_merki_2012
Hannes Jón Jónsson hefur rift samningi sínum við Handknattleiksdeild Umf. Selfoss og mun ekki taka við þjálfun liðsins á næsta tímabili. Aðilar hafa náð samkomulagi um starfslok Hannesar og skilja í sátt. Handknattleiksdeildin óskar Hannesi velfarnaðar í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur.
Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hefur hafið leit að nýjum þjálfara og mun deildin vinna það eins hratt og kostur er.
Hannes Jón vill koma eftirfarandi á framfæri: „Ég þakka handknattleiksdeild Umf. Selfoss kærlega fyrir skilninginn og að gera mér kleift að takast á við annað verkefni erlendis. Ég vil taka fram að forsvarsmenn handknattleiksdeildarinnar hafa verið fagmannlegir með eindæmum í öllum okkar samskiptum frá fyrsta degi. Árangur undanfarinna ára talar sínu máli og er engin tilviljun. Í mínum augum er Umf. Selfoss frábær kostur fyrir metnaðarfulla leikmenn sem vilja ná langt. Að því sögðu vil ég óska handknattleiksdeild Umf. Selfoss alls hins besta og velfarnaðar.“
Stjórn handknattleiksdeildar Selfoss og Hannes Jón Jónsson