Helgina 11.-12. ágúst fór Meistaramót Íslands 15-22 ára fram á Höfn í Hornafirði. HSK/Selfoss sendi 12 unglinga til keppninnar og stóðu þau sig frábærlega. Fjórtán Íslandsmeistaratitlar, auk sex silfurverðlauna og níu bronverðlauna, var afrakstur helgarinnar. Auk þess setti Thelma Björk Einarsdóttir tvö HSK-met í flokki 16-17 ára.
Flokkur 15 ára:
Sigþór Helgason, Umf. Selfoss, vann til fernra gullverðlauna auk tveggja silfurverðlauna. Hann sigraði í kringlukasti með 45,21 m sem er bæting um tæpa 3 metra. Í langstökki bætti hann sig um 4 cm þegar hann stökk 5,85 m og sigraði. Þrístökkið sigraði hann með 11,71 m. Að lokum sigraði hann í spjótkasti með 52,63 m löngu kasti. Silfurverðlaunin hlaut hann fyrir að svífa yfir 1,76 m í hástökki og kasta kúlunni 12,03m.
Andrea Vigdís Victorsdóttir, Umf. Selfoss, varð Íslandsmeistari í spjótkasti er hún þeytti spjótinu 36,68 m. Hún vann til silfurverðlauna í 400 m hlaupi með því að bæta sinn besta árangur um rúma sekúndu og hlaupa á 65,01 sek. Hún vann einnig til þrennra bronsverðlauna, í 100 m hlaupi á tímanum 13,95 sek, í kringlukasti með 36,68 m löngu kasti og í 200 m hlaupi með því að bæta sig um hálfa sekúndu og hlaupa á 28,47sek. Andrea Vigdís bætti sig auk þess í kúluvarpi um 25 cm þegar hún kastaði kúlunni 9,55 m og hafnaði í 5. sæti.
Flokkur 16-17 ára:
Eva Lind Elíasdóttir, Íþf. Þór, varð tvöfaldur Íslandsmeistari. Hún sigraði glæsilega í 100 m grindahlaupi á tímanum 15,62 sek en í undanrásum bætti hún sinn besta árangur með því að hlaupa á 15,34 sek. Eva Lind sigraði einnig í kúluvarpi með því að kasta kúlunni 12,52 m.
Thelma Björk Einarsdóttir, Umf Selfoss, vann til silfurverðlauna í kringlukasti er hún þeytti kringlunni 27,30 m. Í sleggjukasti vann hún til bronsverðlauna með 33,47 m löngu kasti og hún bætti um leið HSK-met Jóhönnu Bríetar Helgadóttur í flokki 16-17 ára um rúma 4 metra. Í spjótkasti bætti hún sitt eigið HSK-met í flokki 16-17 ára um 9 cm þegar hún kastaði 32,81 m og vann til bronsverðlauna, að lokum kastaði hún kúlunni 11,73 m og fékk bronsverðlaun að launum.
Andrea Sól Marteinsdóttir, Umf. Selfoss, vann til bronsverðlauna í kringlukasti þegar hún þeytti kringlunni 26,25 m og bætti sinn besta árangur um 87 cm.
Guðrún Heiða Bjarnadóttir, Umf Selfoss, stökk til bronsverðlauna í þrístökkinu þegar hún stökk 10,36 m.
Elínborg Anna Jóhannsdóttir, Laugdælum, bætti sinn besta árangur í þrístökki um 5 cm þegar hún stökk 10,17 m og hafnaði í 4. sæti.
Jón Gautason, Þjótanda, bætti sinn besta árangur í kringlukasti um 22 cm þegar hann kastaði 32,87 m og auk þess bætti hann sig einnig um rúma 2 metra í spjótkasti þegar hann kastaði spjótinu 34,70 m. Hann hafnaði í 4. sæti í þessum greinum.
Sveit HSK/Selfoss í 4x100m boðlaupi hljóp til bronsverðlauna á tímanum 51,83 sek en sveitina skiðuðu þær Elínborg Anna, Guðrún Heiða, Eva Lind og Andrea Vigdís.
Flokkur 18-19 ára:
Guðmundur Kristinn Jónsson, Umf. Selfoss, varð Íslandsmeistari í spjótkasti en hann kastaði spjótinu 48,32 m.
Flokkur 20-22 ára:
Bjarni Már Ólafsson, Þjótanda, varð þrefaldur Íslandsmeistari. Hann sigraði í þrístökki með 13,76 m, í langstökki sveif hann 6,15 m og að lokum bætti hann sig um 4 cm í hástökki þegar hann stökk 1,79 m og sigraði. Bjarni Már kastaði spjótinu 45,79 m og fékk brons að launum.
Dagur Fannar Magnússon, Umf. Selfoss, varð tvöfaldur Íslandsmeistari. Hann sigraði sleggjukast þegar hann kastaði 45,22 m og kúluvarp með 10,98 m löngu kasti.
Eyrún Halla Haraldsdóttir, Umf. Selfoss, varð Íslandsmeistari í kringlukasti þegar hún kastaði kringlunni 29,87m og auk þess náði hún silfurverðlaunum í kúluvarpi með 9,32 m löngu kasti.
Sveit HSK/Selfoss vann til silfurverðlauna í 4x100m boðhlaupi á tímanum 48,89 sek en sveitina skipuðu þeir Jón,Guðmundur Kristinn, Bjarni Már og Sigþór.