Selfoss_merki_nytt
Opinn fundur í stefnumótun um gildi Ungmennafélags Selfoss verður 21. mars 2013 kl. 20.00–22.00.
Hvaða gildi viljum við hafa að leiðarljósi í starfi UMFS?
Fyrir hvað viljum við standa?
Við hvetjum íbúa eindregið til þess að taka þátt!
Skráning fer fram á netfanginu umfs@umfs.is,
í síma 894-3268 Bára / 844-3050 Hróðný,
eigi síðar en 19. mars. (Staðsetning auglýst síðar).
Næsti áfangi í stefnumótun UMFS er samstarf þjálfara og er sá fundur fyrirhugaður 9. apríl 2013 með þáttöku þjálfara og stjórna félagsins.