ElliMotM2
Í gærkvöld fór fram leikur Selfoss og KS Azoty-Puławy frá Póllandi, en þetta var síðari leikur 3. umferðar Evrópukepnni félagsliða. Leiknum lyktaði með eins marks sigri strákanna okkar, 28-27. Það dugði þó ekki til þar sem fyrri leikurinn tapaðist með 7 mörkum og Selfoss því fallið úr leik í Evrópukeppninni í vetur.
Bæði lið fóru varfærnislega af stað og ekki var mikið skorað fyrstu 20 mínútur. Liðin skiptust á að taka forustu, en munurinn varð þó aldrei meiri en 2 mörk í fyrri hálfleik. Staðan að honum loknum jöfn, 13-13.
Í upphafi síðari hálfleiks gerðu svo strákarnir okkar alvöru áhlaup á gestina. Selfoss náði fjögurra marka mun, 18-14, á 37. mínútu og hefðu getað komist í fimm þegar Sverrir Pálsson var óheppinn og steig á línu þegar hann skoraði úr hraðaupphlaupi. Við þetta vöknuðu gestirnir og stigu á díselgjöfina og á næstu 10 mínútum náðu þeir að jafna leikinn aftur. Þar með var það orðið nokkuð ljóst hvort liðið kæmist áfram í riðlakeppnina. Seinustu 10 mínútur leiksins voru í aðeins meira jafnvægi og aðeins barist upp á heiðurinn, að ná að verja í það minnsta heimavöllinn. Það gekk og landaði Selfossliðið að lokum sigri gegn fyrnasterkum andstæðing, 28-27.
Selfoss er því, eins og áður segir, fallið úr Evrópukepnninni þennan veturinn.
Mörk Selfoss: Elvar Örn Jónsson 10, Árni Steinn Steinþórsson 8, Einar Sverrisson 4, Atli Ævar Ingólfsson 3, Guðjón Baldur Ómarsson 3, Hergeir Grímsson 2, Alexander Már Egan 1.
Varin skot: Pawel Kiepulski 8 (27%) og Sölvi Ólafsson 4 (40%).
Nánar er fjallað um leikinn á , Sunnlenska.is og Mbl.is og visir.is .
Næst tekur við áframhaldandi törn í Olísdeildinni hjá strákunum. Næstu leikir eru á miðvikudag kl 19:30, útileikur gegn Gróttu og á Sunnudag kl. 20:00, heimaleikur gegn Stjörnunni.
____________________________________
Mynd: Elvar Örn átti góðan dag og var markahæstur með 10 mörk.
Umf. Selfoss / Inga Heiða