Valið í æfingahópa yngri landsliða

Þjálfarar U-19, U-17 og U-15 ára landsliða kvenna hafa valið æfingahópa fyrir komandi landsliðshelgi sem verður 21. – 24. Nóvember.  Við Selfyssingar eigum glæsilega fulltrúa í þessum liðum.

Í U-19 ára liðinu eru systurnar Adela Eyrún og Ágústa Tanja Jóhannsdætur sem og Hulda Hrönn Bragadóttir. Í U-17 ára liðinu eru þær Eva lind Tyrfingsdóttir og Inga Dís Axelsdóttir. Í U-15 ára liðinu er þær Hjördís Gauja Kjartansdóttir, Karítas Líf Róbertsdóttir og Maríana Ósk Atladóttir.