Fjórir Selfyssingar á EM

Ljóst er að fjórir Selfyssingar verða í leikmannahóp landsliðsins sem fer á Evrópumeistaramótið í handbolta eftir að Guðmundur Guðmundsson tilkynnti hópinn á blaðamannafundi í gær.

Leikmenn janúarmánaðar

Leikmenn janúarmánaðar eru þau Guðrún Birna Kjartansdóttir og Sölvi Berg Auðunsson.Guðrún Birna er í 5. flokki kvenna, hefur hún æft vel í vetur og stendur sig mjög vel.Sölvi Berg er í 6.

Ísak og Tryggvi með silfur í Þýskalandi

Selfyssingarnir Ísak Gústafsson og Tryggvi Þórisson léku með U-18 ára landsliði Íslands sem tók þátt á hinu árlega Sparkassen Cup í Lübeck í Þýskalandi á milli jóla og nýárs.Liðið bar sigurorð af Sviss og Ítalíu í riðlakeppninni en lá fyrir Þýskalandi.Í undanúrslitum vann liðið öruggan sigur á Hvíta-Rússlandi en liðið endaði í öðru sæti á mótinu eftir þriggja marka tap í hörku úrslitaleik, aftur gegn Þjóðverjum.Gott mót að baki, næstu verkefni liðsins verða í sumar þar sem liðið spilar m.a.

Barbára Sól og Haukur íþróttafólk Árborgar 2019

Knattspyrnukonan Barbára Sól Gísladóttir og handknattleiksmaðurinn Haukur Þrastarson, bæði úr Umf. Selfoss, voru útnefnd íþróttakona og íþróttakarl Sveitarfélagsins Árborgar á árlegri uppskeruhátíð frístunda- og menningarnefndar Árborgar sem fram fór á Hótel Selfossi milli hátíða.Barbára Sól er lykilleikmaður hjá Selfoss en liðið hampaði í sumar Mjólkurbikar KSÍ eftir glæstan sigur á KR í framlengdum úrslitaleik.

Sextán ungmenni í landsliðsverkefnum í byrjun árs

Sextán Selfyssingar hafa verið valdir í yngri landslið Íslands sem æfa nú í byrjun janúar, þar af sex í hæfileikamótun HSÍ og Bláa lónsins.Þjálfarar yngri landsliða HSÍ hafa valið sína hópa fyrir æfingar 2.

Flugeldasala á þrettándanum

Flugeldasalan er opin á þréttandanum!Opið frá 14:00 - 18:00 Kveðjum jólin með stæl

Hátíðahöld á þrettándanum

Jólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði mánudaginn 6. janúar. Gleðin verður með hefðbundnu sniði og sér Ungmennafélag Selfoss um framkvæmdina.

Nýárskveðja frá Ungmennafélagi Selfoss

Stjórnir og starfsfólk Ungmennafélags Selfoss senda Selfyssingum öllum nær og fjær hugheilar óskir um farsæld á nýju ári og þakka samstarfið á liðnu ári en ársins 2019 verður minnst sem stærsta ársins í tæplega 85 ára sögu félagsins.Við hlökkum til komandi árs og þeirra tækifæri sem það ber í skauti sér.

DÚNDURAFSLÁTTAKVÖLD Í KVÖLD 29. DES

Í kvöld, 29. desember frá kl 17:00 - 22:00 verður dúndur afsláttakvöld í flugeldasölu knattspyrnudeildar.Frábærir tertu- og flugeldapakkar á geggjuðu verði!Flugeldasalan er ein af stærstu fjáröflunum knattspyrnudeilar ár hvert og er stór partur í að reka hér á svæðinu öflugt barna- og unglingastarf í knattspyrnu Hlökkum til að sjá ykkur í kvöld Áfram Selfoss.

Karlalið Selfoss tilnefnt sem lið ársins

Lið Íslandsmeistara Selfoss er tilnefnt sem lið ársins af samtökum íþróttafréttamanna, en ásamt Selfyssingum eru kvennalið Vals í handknattleik og körfuknattleik einnig tilnefnd.