Hanna stjórnar leik Íslands U20
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir spilaði á laugardag sinn fyrsta A-landsleik þegar íslenska landsliðið lagði Makedóníu, 28-22, í síðasta leik sínum í undankeppni HM en staðan í hálfleik var 11-12 fyrir Ísland. Íslenska liðið sigraði alla sína leiki í riðlinum.
Hanna skoraði eitt mark í leiknum og stóð fyrir sínu en hún er gríðarlega efnileg og á eflaust eftir að láta að sér kveða með landsliðinu á næstu árum.
Nánar var fjallað um leikinn á vefnum FimmEinn.is og þar er einnig viðtal við Ágúst Jóhannsson landsliðsþjálfara.
---
Hrafnhildur Hanna í leik með landsliði Íslands 20 ára og yngri.
Mynd: Eyjólfur Garðarsson