961684_10155487705285512_563191828_n
Helgina 11. og 12. apríl fóru tveir keppendur frá Taekwondodeild Selfoss á Nutzi open í Finnlandi. Það voru þau Kristín Björg Hrólfsdóttir og Gunnar Snorri Svanþórsson.
Gunnar Snorri keppti bæði í kadett flokki og einnig í junior flokki. Skemmst er frá því að segja að hann gerði sér lítið fyrir og vann til gullverðlauna í -61 kg flokki í cadett flokki og vann til bronsverðaluna í junior -63 kg flokki. Glæsilegur árangur.
Kristín Hrólfsdóttir hreppti bronsverðlaun í sínum flokki senior female -67 kg.
Stjórn Tekwondodeildar Umf. Selfoss óskar þeim innilega til hamingju með þennan góða árangur.
Áfram Selfoss! :-)
PJ