Gumma gegn Póllandi 2
Guðmunda Brynja Óladóttir var í sigurliði Íslands sem lagði Holland í æfingaleik A-landsliða kvenna í knattspyrnu í Kórnum í Kópavogi í gær.
Gummu var skipt inn á völlinn á 70. mínútu þegar staðan var 0-1 fyrir Hollendingum og það var ekki að sökum að spyrja. Gumma breytti gangi leiksins og Ísland hafði 2-1 sigur.
Dagný Brynjarsdóttir fyrrum leikmaður Selfoss lék allan leikinn.
Ítarlegri umfjöllun um leikinn er á vefnum Sunnlenska.is og á Heimasíða Knattspyrnusambandsins.
---
Gumma í leik gegn Póllandi fyrr í vetur.
Ljósmynd: KSÍ