Ída Bjarklind Magnúsdóttir hefur samið við Handknattleiksdeild Umf. Selfoss til þriggja ára.
Ída Bjarklind er hávaxin skytta sem leikið getur bæði hægra og vinstra megin í sókninni, þá er hún öflug í vörninni. Ída er uppalin á Selfossi og þar hóf hún sinn meistaraflokks feril. Eftir það lék hún með Stjörnunni og síðustu ár með Víkingum. Ída lék í gegnum öll yngri landslið og síðustu ár hefur hún verið á meðal markahæstu leikmanna Grill 66 deildarinnar.
Við fögnum því að fá Ídu aftur heim og erum spennt að fá að sjá hana taka næstu skref í Olísdeildinni á Selfossi.