Málþing andleg líðan íþróttamanna
Miðvikudaginn 9. september munu ÍSÍ, KSÍ og HR standa fyrir málstofu um andlega líðan íþróttamanna. Málstofan verður í stofu M208 í Háskólanum í Reykjavík og stendur frá kl.16:00-17:30.
Hafrún Kristjánsdóttir mun fjalla um geðrænan vanda og algengi hans hjá íþróttamönnum og Sævar Ólafsson um íþróttaiðkun í mótvindi og svartnætti. Að lokum mun Ingólfur Sigurðsson knattspyrnumaður segja frá glímu sinni við geðræna erfiðleika.
Aðgangur er ókeypis og öllum frjáls á meðan að húsrúm leyfir.
Auglýsing um viðburðinn