hsk_rgb
Héraðsmót HSK í sundi var haldið í Þorlákshöfn 3. júní sl. 20 keppendur frá þremur liðum tóku þátt og voru skráningar 48 talsins.
Baldur Þór Bjarnason krækti í eina Héraðsmeistaratitil Selfyssinga að þessu sinni þegar hann synti 100 m skriðsund á 1:14,56 mín.
Hamar vann stigakeppni félaga með 87 stig, Selfoss varð í öðru sæti með 35 stig og Dímon varð í þriðja með 27 stig. Vilborg Óttarsdottir frá Hamri var stigahæsta sundkona mótsins, hlaut 18 stig og sigraði í þremur greinum. Dagbjartur Kristinsson frá Hamri vann einnig þrjár greinar og varð stigahæsti sundmaður mótsins. Vilborg Óttarsdóttir frá Hamri vann besta afrekið, samkvæmt stigatöflu FINA. Hún hlaut 325 FINA stig fyrir 50m flugsund.
Sundnefnd HSK vill koma á framfæri þakklæti til starfsfólks íþróttamiðstöðvarinnar í Þorlákshöfn sem gerði sambandinu fært að halda mótið.
Frá þessu er greint á heimsíðu HSK þar sem einnig má finna heildarúrslit mótsins.
Hér fyrir neðan má sjá HSK meistara í öllum greinum mótsins.
50 m flugsund
Dagbjartur Kristjánsson Hamar 38,96
Vilborg Óttarsdóttir Hamar 40,16
50 m baksund
Guðjón Dagbjartsson Hamar 45,44
Vilborg Óttarsdóttir Hamar 43,90
50 m bringusund
Jakob Þórir Hansen Dímon 56,23
Vilborg Óttarsdóttir Hamar 51,02
50 m skriðsund
Jakob Þórir Hansen Dímon 44,98
Guðrún Rís Guðmundsd. Hamar 39,56
100 m baksund
Orri Bjarnason Dímon 1:30,53
100 m skriðsund
Baldur Þór Bjarnason Selfoss 1:14,56
Katrín Linda Hilmisdóttir Hamar 1:43,28
200 m fjórsund
Dagbjartur Kristjánsson Hamar 3:00,81
100 m bringusund
Orri Bjarnason Dímon 1:45,33
Katrín Linda Hilmisdóttir Hamar 1:51,96
100 m flugsund
Dagbjartur Kristjánsson Hamar 1:27,78
4x50m fjórsund
Karlasveit Hamars 3:14,70
Hamar-Dímon 3:01,78