Ómar Ingi Magnússon og félagar í U-18 ára landsliðinu léku í gær tvo leiki á Sparkassen Cup í Þýskalandi. Þrátt fyrir erfiða mótherja stóð Ómar Ingi fyrir sínu í leikjunum og skoraði 4 mörk í hvorum leik.
Í fyrri leik dagsins mætti liðið Sviss og töpuðu strákarnir leiknum 27-22. Staðan í hálfleik var 13-8 fyrir Sviss. Lið Sviss lék mjög vel í leiknum og var töluvert líkamlega sterkara.
Mörk Íslands í leiknum gerðu: Egill Magnússon 5, Ómar Ingi Magnússon 4, Leonharð Harðarson 3, Arnar Freyr Arnarsson 2, Birkir Benediktsson 2, Aron Dagur Pálsson 2, Sigtryggur Daði Rúnarsson 2, Dagur Arnarsson 1 og Hlynur Bjarnason 1.
Í markinu vörðu Einar Baldvin Baldvinsson 7 bolta og Grétar Ari Guðjónsson 3.
Í seinni leik gærdagsins tapaði liðið fyrir Þýskalandi 18-17 í lokaleik liðsins í riðlakeppninni. Staðan í hálfleik var 9-8 fyrir Þýskalandi. Leikurinn var æsispennandi allan tímann en Þýskaland reyndist sterkari undir lokin.
Mörk Íslands í leiknum gerðu: Egill Magnússon 4, Ómar Ingi Magnússon 4, Arnar Freyr Arnarsson 3, Dagur Pálsson 3, Leonharð Harðarson 2 og Birkir Benediktsson 1.
Í markinu átti Grétar Ari Guðjónsson mjög góðan leik og varði 13 bolta.
Í dag mætir liðið Slóvakíu í umspili um sæti 5.-8.
Fylgst er með mótinu á heimasíðu HSÍ.