NSU-logo
Ungmennafélag Íslands er aðili að NSU - Nordisk Samorgnaisations for Ungdomasarbejde en samtökin standa fyrir viðburðum fyrir ungt fólk á Norðurlöndum á hverju ári. Ungmennavika NSU fer að þessu sinni fram í Karpenhøj sem er 50 km frá Aarhus dagana 3.-8. ágúst en flogið verður til og frá Billund. UMFÍ á sæti fyrir fimm þátttakendur á aldrinum 18-20 ára að þessu sinni.
Yfirskrift vikunnar er Norden redder Jorden Paly 4 the planet. Fjallað verður um náttúruna okkar, loftslag á Norðurlöndum í bland við ævintýri og leiðtogahæfileka ungs fólks á Norðurlöndum. Þátttakendur fá tækifæri til að reyna sig í ýmsum aðstæðum s.s kajak ferð, klifri og sofa úti í náttúrunni.
Þátttökugjaldið er 1500 danskar krónur ásamt ferðakostnaði en UMFÍ niðurgreiðir fyrir sína þátttakendur helming.
Umsóknafrestur er til 1. júní nk.
Allar nánari upplýsingar veitir Sabína Steinunn Halldórsdóttir Landsfulltrúi UMFÍ.