06.11.2019
Stelpurnar féllu í kvöld úr leik í 16-liða úrslitum Coca Cola bikarkeppni HSÍ þegar þær mættu KA/Þór í Hleðsluhöllinni, 21-29.Selfyssingar virkuðu stressaðar í upphafi leiks og gengu Akureyringar á lagið og leiddu 1-6 þegar 10 mínútur voru liðnar af leiknum. Stelpurnar náðu að vinna sig aftur inn í leikinn og náðu að hlaupa með KA/Þór út hálfleikinn, staðan í hálfleik 9-13.Akureyringar tóku smá áhlaup í upphafi síðari hálfleiks, en með góðri vörn og frábærri markvörslu héldu stelpurnar sér inn í leiknum. Staðan um miðjan hálfleikinn 17-21. Akureyringar sýndu svo reynslu sína og gæði á lokakaflanum og sigldu heim öruggum sigri, 21-29. Í heildina mjög góður leikur hjá afar ungu Selfossliði gegn reynsluboltum í KA/Þór.Mörk Selfoss: Hulda Dís Þrastardóttir 9/3, Katla María Magnúsdóttir 3, Agnes Sigurðardóttir 3, Rakel Guðjónsdóttir 2, Tinna Sigurrós Traustadóttir 1, Elín Krista Sigurðardóttir 1, Sigríður Lilja Sigurðardóttir 1, Þuríður Ósk Ingimarsdóttir 1.Varin skot: Henriette Østergaard 21 (44%)Nánar er fjallað um leikinn á .Næsti leikur hjá stelpunum er á sunnudagskvöldið þegar þær taka á móti FH í Hleðsluhöllinni, slagur toppliðanna í Grill 66 deildinni. Strákarnir eiga svo leik á mánudagskvöldið gegn Haukum á Ásvöllum, enn einn stórleikurinn í toppbaráttu Olísdeildarinnar. Henriette var frábær í kvöld.
Umf.
04.11.2019
Selfoss tók á móti Sjtörnunni í Hleðsluhöllinni í kvöld. Eins og of vill verða þegar Selfoss leikur handbolta var háspenna og dramatík sem endaði með sigurmarki Selfyssinga á lokasekúndum leiksins, 31-30.Leikmenn beggja liða fóru varlega af stað og var jafnt á öllum tölum fram á 10 mínútu, þá tóku Selfyssingar leikinn til sín og komu forystunni upp í þrjú mörk, 6-3. Stjörnumenn spyrntu við fótunum og héldu í við heimamenn eftir það og náðu að jafna leikinn, 10-10, á 24.
03.11.2019
Fulltrúar Byko og handknattleiksdeildar Selfoss undirrituðu á dögunum samstarfssamning, Byko verður þar með einn af styrktarðilum handboltans á Selfossi.
01.11.2019
Stelpurnar tóku á móti nágrönnum sínum frá Eyjum í Grill 66 deildinni í Hleðsluhöllinni í kvöld, Selfoss sigraði leikinn með 5 marka mun, 22-17.Bæði lið voru lengi í gang en Selfoss var sterkari aðilinn framan af í fyrri hálfleik, ÍBV náði að jafna leikinn í 9-9 en Selfyssingar tóku við sér og komust tveimur mörkum yfir fyrir leikhlé í 12-10.
01.11.2019
Leikmenn nóvembermánaðar eru þau Embla Dís Gunnarsdóttir og Magnús Tryggvi Birgisson.Embla Dís er á yngra ári í 3. flokki kvenna.
01.11.2019
Strákarnir töpuðu með einu marki gegn Aftureldingu í kvöld í Mosfellsbænum, 32-31.Selfyssingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust í 5-1 eftir sjö mínútna leik. Eftir það var jafnræði á með liðunum og staðan 8-8 um miðjan fyrri hálfleik. Leikurinn var í nokkru jafnvægi það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en Selfyssingar þó alltaf skrefi á undan. Staðan í hálfleik var 14-17 Selfyssingum í vil.Selfyssingar héldu frumkvæðinu í síðari hálfleik þangað til tíu mínútur voru eftir en þá jafnaði Afturelding í 24-24. Lokakaflinn var spennandi líkt og oft áður, Afturelding náði yfirhöndinni í blálokin og hélt henni til leiksloka. Lokatölur 32-31 Aftureldingu í vil.Mörk Selfoss: Haukur Þrastarson 9/1, Guðjón Baldur Ómarsson 6, Árni Steinn Steinþórsson 4, Guðni Ingvarsson 4, Hergeir Grímsson 4/2, Magnús Öder Einarsson 2, Tryggvi Þórisson 1, Nökkvi Dan Elliðason 1.Varin skot: Sölvi Ólafsson 6 (22%), Einar Balvin Baldvinsson 1 (8,3%)Nánar er fjallað um leikinn á , og .Nóvembermánuður er pakkaður og næsti leikur strax á mánudaginn hjá strákunum, en þá mæta þeir Stjörnumönnum í Hleðsluhöllinni kl 19.30. Stelpurnar mæta hins vegar Eyjastúlkum á morgun, föstudag, kl 18 í Hleðsluhöllinni. Svo ef fólk vill toppa helgina þá er Selfoss U að keppa á laugardaginn gegn Herði, einnig í Hleðsluhöllinni, kl 16.30. Mætum og styðjum okkar lið!Haukur Þrastarson var markahæstur Selfyssinga í kvöld með 9 mörk
Sunnlenska.is / Guðmundur Karl
29.10.2019
Fimmtudaginn 31. október verður með vetrartilboð fyrir félagsmenn Umf. Selfoss í Tíbrá að Engjavegi 50 milli klukkan 16 og 19.
Það verður boðið upp á á keppnistreyju Umf.
29.10.2019
Gleðifréttir frá Selfossi að Kenan Turudija skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss. Kenan var kosinn besti leikmaður 2.
29.10.2019
Uppskeruhátíð MSÍ var haldin um seinustu helgi þar sem afhent voru verðlaun fyrir árangur sumarsins. Iðkendur frá mótokrossdeild Selfoss fengu þó nokkur verðlaun, bæði í mótokross og enduro.Heiðar Örn Sverrison varð Íslandsmeistari í MX2.