31.10.2015
Meistaraflokkslið karla mætti Íþróttafélagi Hafnarfjarðar í 1.deildinni í gær. ÍH voru sterkari framan af og leiddu t.a.m. 7-11 um miðjan fyrri hálfleik, Selfyssingar náðu að bæta úr og staðan í hálfleik var 17-18.Í þeim síðari komu Selfossstrákar sterkari til leiks og náðu fljótt forystu sem þeir létu ekki af hendi þótt Hafnfirðingar reyndu hvað þeir gátu.Hornamaðurinn knái og stórskemmtilegi hann Andri Már fór fyrir liðinu og var markahæstur með 9 mörk.Góður 34-32 sigur staðreynd og liðið situr nú í 3.sæti deildarinna með fimm sigra og tvö töp.Stefán Árnason þjálfari Selfoss sagðist í viðtali við síðuritara vera ánægður með leik sinna manna:"sóknarleikurinn var trúlega það besta sem liðið hefur sýnt í allan vetur",Stefán sagðist vera sáttur með liðið og leikinn, sérstaklega í ljósi þeirrar staðreyndar að í leiknum vantaði báðar örvhentu skyttur liðsins þá Jóhann Erlingsson og Teit Örn Einarsson, en Teitur var markahæsti leikmaður liðsins í síðustu tveimur leikjum. "Í þessum leik náðum við loksins að spila sóknarleikinn í gegn eins og hann er hannaður til og vorum þolinmóðir sem skilaði góðum færum nær allan tímann"Næsti leikur er heimaleikur gegn efsta liðinu, Stjörnunni úr Garðabæ, föstudaginn 13.nóv í íþróttahúsi Vallaskóla kl 19:30.Markaskorun:
Andri Már Sveinsson 9
Elvar Örn Jónsson 6
Hergeir Grímsson 6
Guðjón Ágústsson 4
Örn Þrastarson 3
Árni Geir Hilmarsson 2
Alexander Már Egan 2
Árni Guðmundsson 2Markvarsla:
Helgi Hlynsson 6 varðir boltar (24%)
Birkir Fannar Bragason 3 varðir boltar (20%)MM
JÁE /mynd).
30.10.2015
Stefán Ragnar Guðlaugsson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss og leikur því á ný með liðinu á næsta keppnistímabili.Stefán Ragnar er öllum hnútum kunnugur á Selfossvelli enda fæddur og uppalinn á Selfossi og lék m.a.
30.10.2015
Búið er að opna umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga. Frestur til að skila inn umsóknum vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót á árinu 2015 rennur út á miðnætti mánudaginn 11.
30.10.2015
Líkt og undanfarin ár sýnir verðlagseftirlit ASÍ að æfingagjöld í knattspyrnu á Selfossi er með því allra lægsta á landinu.Þetta kemur Gunnari Rafni Borgþórssyni yfirþjálfara yngri flokka ekki á óvart og hann bætti við „Við erum ánægð með niðurstöðu sem við áður vissum en þrátt fyrir að vera með þetta lág æfingagjöld býður knattspyrnudeildin upp á vaktaðar rútuferðir í bestu æfingaaðstöðuna á Suðurlandi yfir vetrartímann í Hamarshöllinni í Hveragerði." Þetta er frábær þjónusta við íbúa á Selfossi þar sem lagt er upp úr metnaði og fagmennsku.Verðlagseftirlitið tók saman æfingagjöld í knattspyrnu hjá sextán íþróttafélögum víðsvegar um landið.
29.10.2015
Í byrjun október hélt nítján manna hópur Frískra Flóamanna í víking til Þýskalands til að taka þátt í Munchen-maraþoni sem fram fór 11.
29.10.2015
Þær Heiðdís Sigurjónsdóttir og Hrafnhildur Hauksdóttir, leikmenn Selfoss, æfa um helgina með úrtakshóp U19 kvenna.Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U19 kvenna hefur valið hóp til æfinga 30.
28.10.2015
Jón R. Bjarnason, bankastjóri Íslandsbanka á Selfossi handsalaði fyrir skömmu styrktarsamning við Fimleikadeild Umf. Selfoss.Íslandsbanki hefur um árabil verið aðalstyrktaraðili fimleikadeildarinnar og var samningurinn endurnýjaður í upphafi október.
28.10.2015
Dagný Brynjarsdóttir mun leika með Portland Thorns í bandarísku atvinnumannadeildinni í knattspyrnu á næstu leiktíð.Frá þessu var greint á vefsíðunni .Dagný þekkir vel í til í Bandaríkjunum eftir nám í Florida State háskólanum þar sem hún var fyrirliði í sigursælu liði skólans og einn besti leikmaður háskólaboltans á síðustu leiktíð.
28.10.2015
Liðin sem voru jöfn í 5. og 6.sæti Olísdeildarinnar mættust í íþróttahúsi Vallaskóla í kvöld.Margir sem áttu svona fyrirfram von á því að um jafnan leik yrði að ræða, svo var ekki. Valsliðið mun betra á flestum sviðum handboltans, allan fyrri hálfleikinn. Staðan í hálfleik 10-17 og lítið sem gladdi auga þeirra fjölmörgu áhorfenda sem leið sína lögðu í íþróttahúsið í kvöld.Eitthvað hefur MS hleðslan sem stelpurnar drukku í hálfleik haft að segja, nema það hafi verið hálfleiksræða þjálfara, því annað var að sjá til liðsins í seinni hálfleik og voru þær virkilega að leggja sig fram og flestar að berjast af krafti. Liðið náði að minnka muninn í eitt mark þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir, en náðu ekki að láta kné fylgja kviði og Valsstúlkur skoruðu síðustu mörkin og höfðu sigur á Selfossstúlkum 21-25.Í samtali við Hilmar Guðlaugsson annan af þjálfurum Selfoss mátti sjá að hann var ósáttur við spilamennsku liðsins, en hann sagði: „Fyrri hálfleikur var algjör skandall og varð okkur að falli í kvöld.
27.10.2015
Meistaraflokkur Selfoss mun ásamt liðum Íslands sem taka þátt á Norðurlandamótinu í hópfimleikum sýna á sem haldið verður á sunnudag hjá Stjörnunni í Ásgarði.