08.12.2014
Selfoss og Fjölnir skildu jöfn eftir að Selfoss hafði verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 9-12. Fjölnir byrjaði leikinn betur en Selfoss jafnaði um miðjan fyrri hálfleikinn og náðu svo ágætis forskoti í stöðunni 5-9 en staðan var eins og áður sagði þrjú mörk í plús fyrir Selfoss í leikhléi.Selfyssingar byrjuðu seinni hálfleikinn illa, hleyptu Fjölnismönnum of mikið inn í leikinn sem náðu að jafna í 13-13 á fyrstu fimm mínútunum.
04.12.2014
Þrír Selfyssingar, Elvar Örn Jónsson, Hergeir Grímsson og Guðjón Ágústsson, hafa verið valdir í U-19 ára landslið pilta sem tekur þátt í Sparkassen-cup í Mertzig í Þýskalandi milli jóla og nýárs.Hópurinn kemur saman til æfinga dagana 20.-22.desember og er fyrsta æfing í Kaplakrika sunnudaginn 21.
04.12.2014
Selfyssingurinn Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir fór með A-landsliði kvenna til Makedóníu í morgun. Þar verður seinni leikur þjóðanna í forkeppni heimsmeistaramótsins spilaður á laugardag.
04.12.2014
Þeir Daníel Arnar Róbertsson og Sölvi Ólafsson leikmenn Selfoss hafa verið valdir í 18 manna undirbúningshóp U-21 árs landsliðs karla.
03.12.2014
Knattspyrnudeild Selfoss hefur komist að samkomulagi við hinn 22 ára Jordan Lee Edridge að hann leiki með liði Selfyssinga næstu tvö árin.Jordan Lee er fjölhæfur varnarmaður og kemur til liðsins frá Grindavík þar sem hann lék seinustu þrjú keppnistímabil.
03.12.2014
Í október var úthlutað styrkjum úr Fræðslu- og verkefnasjóði UMFÍ og var þetta seinni úthlutun ársins. Sjóðurinn veitir m.a. styrki til félags- og íþróttastarfs ungmennafélagshreyfingarinnar með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, félagsmálum og félagsstarfi.Alls var úthlutað rúmlega 5 milljónum króna til 39 verkefna.
02.12.2014
Selfyssingurinn Þorsteinn Daníel Þorsteinsson hefur verið valinn til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U21 liðs karla í knattspyrnu.Æfingarnar, sem eru undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar þjálfara U21 landsliðs Íslands, fara fram í Kórnum helgina 6.
02.12.2014
Fjölmenni var á aðalfundi Knattspyrnudeildar Umf. Selfoss sem haldinn var Tíbrá fimmtudaginn 27. nóvember. Stjórn deildarinnar var endurkjörin á fundinum og er það til marks um þann stöðugleika sem deildin hefur náð á seinustu árum.Óskar Sigurðsson, formaður knattspyrnudeildar, flutti skýrslu stjórnar og lýsti því daglega starfi sem fram fer á vettvangi deildarinnar þar sem meginþunginn er yfirleitt sá sami, þ.e.
01.12.2014
Selfyssingar tóku á móti Gróttumönnum í 1. deildinni í íþróttahúsi Vallaskóla á föstudag.Fyrir þá sem áttu von á spennandi leik í toppbaráttunni stóð leikurinn aldrei undir væntingum.
01.12.2014
KSÍ hefur gengið frá ráðningu Selfyssingsins Halldórs Björnssonar sem þjálfara U17 landsliðs karla næstu tvö árin, og mun hann jafnframt taka við hæfileikamótun KSÍ.Halldór, sem hefur lokið KSÍ-A þjálfara gráðu og markmannsþjálfaragráðu, hefur kennt á þjálfaranámskeiðum KSÍ og var í þjálfarateymi A landsliðs kvenna sem komst í fjórðungsúrslit í lokakeppni EM í Svíþjóð 2013.Auk þess hefur Halldór þjálfað á Selfossi í áraraðir, m.a.