20.05.2015
Karlalið Selfoss í knattspyrnu er komið í 32-liða úrslit Borgunarbikarsins eftir 0-2 sigur á 3. deildarliði Reynis í Sandgerði í gær.Nánar er fjallað um leikinn á vef . .
20.05.2015
Lokahóf yngri flokka Handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður haldið í íþróttahúsi Vallaskóla fimmtudaginn 21. maí og stendur frá klukkan 17-18.Á dagskrá er verðlaunaafhending, myndataka og grillveisla.Foreldrar og forráðamenn eru eindregið hvattir til að mæta með krökkunum.
19.05.2015
Krakkarnir úr Fimleikadeild Selfoss gerðu góða ferð á Egilsstaði um nýliðna helgi en þar fór fram vormót Fimleikasambands Íslands.
18.05.2015
Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum 11-14 ára verður haldið á Selfossvelli dagana 27.-28. júní nk. Frjálsíþróttaráð HSK mun sjá um framkvæmd mótsins og nú þegar hefur tekið til starfa sérstök Meistaramótsnefnd sem sér um skipulagningu í aðdraganda mótsins.Auk þess að sjá um frjálsíþróttakeppnina mun ráðið selja gistingu með morgunmat í Vallaskóla á meðan mótinu stendur og boðið verður upp á kvöldverð og kvöldvöku á laugardagskvöldinu, allt á hóflegu verði.
18.05.2015
Strákarnir okkar fengu HK í heimsókn á JÁVERK-völlinn í 1.deildinni á föstudag en bæði lið unnu sína leiki í fyrstu umferð.Okkar menn réðu lögum og lofum á vellinum stóran hluta leiksins eða allt þar til að nýr liðsmaður Selfoss, Halldór Arnarson, var rekinn af velli með sitt annað gula spjald á 67.
18.05.2015
Íslandsmót unglinga í júdó fór fram í húsakynnum Júdódeildar Ármanns þann 2. maí. Selfyssingar áttu fjölda keppenda á mótinu og var árangurinn hreint út sagt stórkostlegur hjá okkar mönnum.Sex júdómenn tryggðu sér Íslandsmeistaratitla, þeir Bjartþór Freyr , Egill Blöndal, Halldór Ingvar, Grímur, Krister Frank og Úlfur Þór.Allir keppendurnir voru júdódeildinni til mikils sóma og magnað er að fylgjast með þessari litlu deild skila af sér svona mörgum efnilegum íþróttamönnum.Öll úrslit mótsins má finna á .Fjölda mynda frá mótinu má finna á .þ.þorst.---Keppendur Selfoss náðu glæsilegum árangri.Ljósmynd: Umf.
18.05.2015
Selfyssingurinn Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir sópaði til sín verðlaunum á lokahófi HSÍ sem haldið var á laugardagskvöld.Hrafnhildur Hanna var markahæsti leikmaður Olís-deildar kvenna 2015 með 159 mörk, besti sóknarmaður Olís-deildarinnar og var auk þess útnefnd sem besta vinstri skyttan í deildinni og þar með valin í úrvalslið deildarinnar.
17.05.2015
Valinn hefur verið fyrsti Afrekshópur kvenna á vegum HSÍ. Í hópnum eru þær Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Elena Elísabet Birgisdóttir leikmenn Selfoss auk þess sem Selfyssingurinn Þuríður Guðjónsdóttir er í hópnum en hún gekk á dögunum til liðs við Fylki.Hópurinn verður við æfingar næstu þrjár vikur undir stjórn landsliðsþjálfara HSÍþ.
15.05.2015
Dagný Brynjarsdóttir, sem varð fyrir skemmstu þýskur meistari í knattspyrnu með FC Bayern München, hefur gengið til liðs við Selfoss á nýjan leik og leikur með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.
15.05.2015
Stelpurnar okkar sóttu Fylki heim í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar í gær. Það er skemmst frá því að segja að liðið virtist aldrei komast í takt við leikinn og sú barátta og kraftur sem einkennt hefur liðið undanfarin ár virtist víðsfjarri.Fylkir vann 2-0 en heimakonur létu Selfoss um að stjórna leiknum og beitti hættulegum skyndisóknum þegar færi gafst.