14.05.2013
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir var valin efnilegasti leikmaður N1-deildar kvenna á lokahófi HSÍ sem fór fram síðastliðið laugardagskvöld, 11.
13.05.2013
Vel heppnað lokahóf handknattleiksdeildarinnar fór fram í Hvíta húsinu, laugardaginn 4. maí. Grímur Hergeirsson handboltakempa, stýrði samkomunni af stakri snilld en boðið var upp á heimatilbúin og aðkeypt skemmtiatriði, haldið var uppboð og dregið var í happdrætti en í boði voru margir mjög veglegir vinningar.
12.05.2013
Síðasti dagur Vormóts FSÍ í hópfimleikum kláraðist í dag með keppni í 3.flokki. Átján lið voru mætt til keppni í kvennaflokknum og átti Fimleikadeild Selfoss þrjú lið þar af.
11.05.2013
Annar dagur Vormóts Fimleikasambandsins fór fram í Vallaskóla í dag. Í morgun var keppt í opnum flokki sem er flokkur 15 ára og eldri.
11.05.2013
Vormót Fimleikasambands Íslands fer vel af stað en keppt er í íþróttahúsi Vallaskóla alla helgina. Í kvöld var keppt í 4.flokki kvenna og 2.flokki karla.
10.05.2013
Um helgina stendur yfir bæjar- og menningarhátíðin Vor í Árborg. Ungmennafélagið tekur þátt í hátíðinni með ýmsum hætti og má þar nefna að fyrsti knattspyrnuleikur sumarsins á Selfossvelli fór fram í gær þegar heimamenn tóku á móti norðanmönnum í KA.
10.05.2013
Íslandsmót Garpa (IMOC) fór fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði 3. – 4. maí 2013. Frá UMFSelfossi tóku þátt fimm keppendur: Sigmundur Stefánsson í flokki 60-64 ára, Hrund Baldursdóttir í flokki 45-49 ára, Gunnar Þór Gunnarsson í flokki 40-44 ára, Ægir Sigurðsson og Sigurlín Garðarsdóttir í flokki 35-39 ára, Stefán Reyr Ólafsson í flokki 30-34 ára og frá Hamri keppti Magnús Tryggvason í flokki 45-49 ára.
08.05.2013
Fimleikadeild Selfoss gefur út vormótsblað í tengslum við Vormót Fimleikasambands Íslands sem haldið er á Selfossi um helgina. Blaðið er borið út í hús í Sveitarfélaginu Árborg en einnig fá áhorfendur á mótinu eintak.
05.05.2013
Aldursflokkamót HSK fór fram á Hvolsvelli sunnudaginn 5. maí. 45 keppendur frá fimm félögum mættu á bakkann í útilauginni. Besta afrek mótsins vann Þórir Gauti Pálsson frá Selfossi í 100m skriðsundi og loksins, eftir margra ára bið, vann lið Selfoss mótsbikarinn með 185 stig.
28.04.2013
Íslandsmót í Júdó 2013 fór fram 13. apríl en að þessu sinni kepptu aðeins tveir keppendur fyrir UMFS þeir Egill Blöndal og Grímur Ívarsson. Egill var að keppa í fyrsta skipti í -90kg flokki á Íslandsmóti og gekk vel þó hann væri í léttara lagi í þessum þyngdarflokki. Fyrst keppti Egill við Jón Sigurðsson Draupni öflugan júdómann að norðan, en Egill náði að knýja fram sigur með sannfærandi hætti. Næst áttust þeir við Egill og Þorvaldur Blöndal JDÁ og varð Egill að játa sig sigraðan gegn þessum frábæra gamla júdókappa, en Þorvaldur náði Agli í gólfið og vann fullnaðarsigur á fastataki. Að lokum keppti Egill við Kolbein Kristjánsson JDÁ hafði Egill nokkra yfirburði í þessarri viðureign sem lauk með fullnaðarsigri Egils á „ippon“ kasti, þannig að Egill náði öðru sæti á efir Þorvaldi Blöndal. Grímur Ívarsson var að stíga sín fyrstu skref í flokki fullorðina og keppti í -81kg flokki en Grímur er aðeins 15 ára og nokkuð léttur í þessum flokki, þannig að ljóst var að þetta yrði erfiður dagur hjá Grími. Auk þess er -83kg flokkurinn trúlega sá sterkasti á Íslandi þessa dagana. Þar sem eru fyrir bardagamenn eins og Kristján Jónsson, Jón Þórarinsson og Sveinbjörn Iura. Fyrstu viðureign átti Grímur við Kristján Daðason JR og stóð Grímur fyllilega undir væntingum en varla var hægt að búast við að Grímur næði að sigra Kristján Daðason, sem hefur bætt sig mjög frá síðsta ári enda fór svo að Kristján vann þessa viðureign. Næst keppti Grímur við Kristján Jónsson, sem gekk sérlega vel á þessu móti, og átti Grímur við ofurefli að etja og tapaði þessarri viðureigna eftir snörp átök. Kristján Jónsson JR hélt síðan áfram sigurgöngu sinni og vann Sveinbjörn Iura í loka viðureign á glæsilegu „ippon kasti“ fullnaðar sigur í höfn og Íslandsmeistara titill, en þeir Kristján og Sveinbjörn hafa einmitt í mörgum undanförnum mótum barist um úrslitin í -83kg flokki og Sveinbjörn oftast náð að knýja fram sigur efir langa og stranga keppni í seinni tíð. Egill var ekki hættur keppni því hann ákvað að taka einnig þátt í opnaflokknum þar sem kepptu meðal annarra kappa sterkasti judomaður landsins Þormóður Jónsson JR ný krýndur Íslandsmeistari í þungavikt. Egill brást ekki aðdáendum sínum og náði 3.