Fréttabréf UMFÍ

Minningarmót 2018

Laugardaginn 28. apríl síðastliðinn fór fram árlegt Minningarmót hjá fimleikadeild Umf. Selfoss. Minningarmótið er haldið í minningu um Magnús Arnar Garðarsson, þjálfara hjá deildinni sem lést í mótorhjólaslysi aðeins tvítugur að aldri, árið 1990.Minningarmótið hefur skapað sér fastan sess hjá fimleikadeildinni og er orðið að uppskeruhátíðinni okkar, þar sem þeir iðkendur eða lið sem skarað hafa framúr fá ýmis konar viðurkenningar.

Caitlyn Clem í Selfoss

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við bandaríska markmanninn Caitlyn Clem og mun hún spila með félaginu í Pepsi-deild kvenna í sumar. Clem, sem er 22 ára, kemur til Selfoss úr bandaríska háskólaboltanum þar sem hún var lykilmaður í liði Wisconsin háskólans.  „Caitlyn var hjá okkur í nokkra daga til reynslu áður en við sömdum við hana.

Selfoss komið yfir í einvíginu

Selfoss er komið yfir í einvíginu gegn FH eftir frábæran 31-29 sigur í gærkvöldi. Selfyssingar byrjuðu af miklum krafti og komust mest sex mörkum yfir í fyrri hálfleik.

Byrjendanámskeið í ungbarnasundi

Nýtt byrjendanámskeið í ungbarnasundi, Guggusundi, hefst laugardaginn 5. maí.Skráning er hafin á netfanginu  eða í síma 848-1626.Kennari á námskeiðinu er Guðbjörg H.

Allyson Haran í Selfoss

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við bandaríska varnarmanninn Allyson Haran og mun hún spila með félaginu í Pepsi-deild kvenna í sumar. Haran, sem er 22 ára gömul, kemur til Selfoss úr bandaríska háskólaboltanum en hún var fyrirliði í sterku liði Wake Forest háskólans.

Apótekarinn einn af aðalstyrktaraðilum knattspyrnudeildar Selfoss

Nú á dögunum var undirritaður nýr styrktarsamningur milli Apótekarans og Knattspyrnudeildar Selfoss. Mikil ánægja er hjá báðum aðilum með nýjan samning. Apótekarinn er og verður einn af aðalstyrktaraðilum knattspyrnudeildar og mun vera mjög sjáanlegur partur af knattspyrnusumrinu á Selfossi.Apótekarinn er hluti af Lyfjum og heilsu sem er framsækið verslunar- og þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið.

Jafnt í einvíginu eftir tap í Kaplakrika

Selfyssingar töpuðu gegn FH í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í Kaplakrika í gær. FH-ingar byrjuðu leikinn betur og náðu strax forskotinu, Selfoss náði góðum kafla undir lok fyrri hálfleiks og munaði aðeins tveimur mörkum á liðunum í hálfleik, 17-15.

Sebastian kominn í heiðurshöll Selfoss handbolta

Sebastian Alexandersson varð þriðji Selfyssingurinn til að hljóta sæti í heiðurshöll Selfoss handbolta, en þar komast aðeins þeir sem hafa spilað með félaginu í 10 ár eða meira.   Sebastian kom til félagsins árið 2003 sem spilandi þjálfari og lék með liðinu til ársins 2015.

Alexis Kiehl í Selfoss

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við bandaríska framherjann Alexis Kiehl og mun hún spila með félaginu í Pepsi-deild kvenna í sumar.   Kiehl, sem er 22 ára gömul, kemur til Selfoss úr bandaríska háskólaboltanum en hún var markahæsti leikmaður Dayton háskólans í Ohio á síðasta ári og valin leikmaður ársins hjá skólanum.   „Mér líst mjög vel á Alexis.