Fjögur HSK met sett á fallegum blíðviðrisdegi

Vormót HSK fór fram á Selfossvelli laugardaginn 20. maí síðastliðinn. Annað eins blíðviðri hefur sjaldan sést á vormótinu. Fjögur HSK-met og fjölmörg persónuleg met féllu við þessar góðu aðstæður.

Katrín Ósk og Elvar Örn leikmenn ársins

Lokahóf handknattleiksdeildar Selfoss fór fram með glæsibrag á Hótel Selfoss um helgina þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir árangur vetrarins.Katrín Ósk Magnúsdóttir og Elvar Örn Jónsson voru valin leikmenn ársins.

Selfoss - Augnablik

Þriðjudaginn 23. maí taka stelpurnar í Selfoss á móti Augnablik í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins.Hlökkum til að sjá ykkur á vellinum.

Selfyssingar sáu rautt

Selfyssingar tóku á móti Gróttumönnum í Inkasso-deildinni á laugardag. Einungis eitt mark var skorað í leiknum og það gerðu gestirnir um miðbik seinni hálfleiks.Það var fátt um fína drætti hjá okkar strákum í leik sem einkenndist af þéttum varnaleik.

Öruggur sigur í Ólafsvík

Stelpurnar okkar unnu öruggan 4-0 sigur á Víkingi í Ólafsvík í 1. deild kvenna í knattspyrnu á föstudag.Selfyssingar voru mun sterkari aðilinn í leiknum og hefðu hæglega getað unnið stærri sigur.

Gull, silfur og brons á Norðurlandamóti

Norðurlandamótið í júdó fór fram í Trollhattan í Svíþjóð dagana 13.-14. maí. Fjórir Selfyssingar voru í sextán manna landsliðashópi auk fimm keppenda sem fóru á eigin vegum eða síns félags.

Selfyssingar drógust gegn FH í bikarnum

Selfyssingar eru komnir áfram í Borgunarbikarnum eftir torsóttan sigur á 3. deildarliði Kára frá Akranesi. Alfi Conteh og JC Mack komu Selfyssingum í 2-0 á fyrsta korterinu en gestirnir sneru taflinu og jöfnuðu um miðbik seinni hálfleiks.

Sumarfimleikar fyrir börn fædd 2008–2010.

Fjölbreyttar æfingar og leikir með áherslu á grunnfimleika, samhæfingu, styrk og liðleika. Ekki þarf að hafa verið í fimleikum áður til að geta sótt þessar æfingar.

15 milljónir til uppbyggingar knatthúss á Selfossi

Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum 26. apríl síðastliðinn úthlutun úr Mannvirkjasjóði KSÍ.Úthlutað var 15 milljónum króna til byggingu yfirbyggðs knatthúss á Selfossi en alls var , samtals um 170 milljónum króna.

Fjórða Grýlupottahlaupið

Góð þátttaka var í fjórða Grýlupottahlaupi ársins 2017 sem fór fram á Selfossvelli laugardaginn 13. maí.Úrslit úr hlaupinu má finna á vefsíðu . Bestum tíma hjá stelpunum náði Hrefna Sif Jónasdóttir, 3:23 mín og hjá strákunum var það Dagur Fannar Einarsson sem hljóp á 2:46 mín.Fimmta hlaup ársins sem fer fram nk.