12.05.2021
Aðalfundur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss sem frestað var í mars vegna samkomubanns verður haldinn í Tíbrá miðvikudaginn 19. maí klukkan 20:00.Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.Allir velkomnir,
Frjálsíþróttadeild Umf.
11.05.2021
Páskamót JR og Góu var haldið föstudaginn 30. apríl og laugardaginn 1. maí en því hafði áður verið frestað vegna samkomubanns.Mótið fór nú fram í fimmtánda skipti og var opið öllum júdóklúbbum eins og venjulega.
10.05.2021
Nýliðar Selfoss léku fyrsta leik tímabilsins í Lengjudeildinni á laugardag þegar lið Vestra kom í heimsókn.Heimamenn fengu skell þar sem Vestramenn voru mun beittari í upphafi leiks og skoruðu þrjú mörk á fyrstu tuttugu mínútunum án þess að Selfyssingar fengju rönd við reist.
10.05.2021
Selfoss tapaði fyrir ÍR í síðasta leik sínum í Grill 66 deild kvenna þennan veturinn á föstudaginn, 24-23.
Leikurinn var nokkuð jafn, en Selfoss var alltaf skrefinu á undan.
10.05.2021
Selfoss fór norður og sótti tvö góð stig gegn Þór Akureyri. Selfoss unnu leikinn með sex mörkum, 21-27. Þórsarar byrjuðu leikinn betur en Selfoss jafnaði í stöðunni 5-5.
08.05.2021
Selfoss spilar sinn fyrsta leik í Lengjudeildinni á laugardag þegar lið Vestra kemur í heimsókn. Leikurinn hefst klukkan 14:00 á JÁVERK-vellinum.
Í ljósi aðstæðna þá er bara hægt að taka á móti 100 áhorfendum.
06.05.2021
Fyrri hálfleikur var frekar bragðdaufur en stelpurnar okkur stjórnuðu leiknum þó ágætlega. Brenna Lovera kom okkur yfir í lok fyrri hálfleiks eftir fyrirgjöf frá Hólmfríði Magnúsdóttur.
Í seinni hálfleik var sama saga þar sem Selfoss stýrði leiknum.
05.05.2021
Selfyssingar tóku á móti Völsurum í Olísdeild karla í gærkvöldi. Þrátt fyrir frábæra byrjun töpuðu strákarnir með fimm mörkum, 26-31.Selfoss byrjaði mun betur í leiknum og voru búnir að skora fjögur mörk gegn engu hjá Val.
04.05.2021
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur í nítjánda sinn fyrir , heilbrigðri vinnustaðakeppni um allt land, dagana 5.-25. maí.