Seinni hluta Íslandsmóts unglinga í hópfimleikum lokið

Dagana 11. - 12. maí fór seinni hluti Íslandsmóts unglinga fram, í umsjá Aftureldingar í Mosfellsbæ. Selfoss átti 2 lið sem kepptu á laugardeginum, eitt lið í 3.

Folatollur afhentur

Eins og áður hefur komið fram var handknattleiksdeildar Selfoss í lok apríl. Féll fyrsti vinningur, folatollur frá Auðsholtshjáleigu, í skaut Þóreyjar Jónasdóttur frá Haukadal.Fjöldi vinninga er ósóttur en hægt er að vitja vinninga á skrifstofu félagsins í Tíbrá á skrifstofutíma.Það var Alexander Már Egan sem afhenti Þóreyju vinninginn í Hleðsluhöllinni. Ljósmynd: Umf.

ÍSÍ | Guðmundur Kr. heiðursfélagi og Olga kosin í stjórn

74. Íþróttaþing Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands var haldið í Reykjavík um síðustu helgi. Þingfulltrúar voru vel á annað hundrað fulltrúa af öllu landinu.

Sópurinn á lofti á Selfossi

Selfoss mætti Valsmönnum í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í troðfullri Hleðsluhöll í kvöld.  Leiknum lauk með sigri Selfoss, 31-32.  Einvíginu er því lokið með 3-0 sigri Selfyssinga og strákarnir eru komnir í úrslit Íslandsmótsins í fyrsta sinn síðan 1992!Fyrri hálfleikur fór af stað með fullri ferð eins og hinir leikrnir í þessari seríu.  Liðin skiptust á að halda forystunni en munurinn aldrei meiri en tvö mörk og jafnt á flestum tölum.  Þegar nokkrar mínútur voru eftir af hálfleiknum þá tóku Selfyssingar áhlaup á Valsara sem misstu einbeitinguna, staðan í hálfleik 17-14.Síðari hálfleikur byrjar í jafnvægi, Selfyssingar héldu forskotinu í 2-3 mörkum þar til 10 mínútur voru eftir af leiknum.  Þá stigu heimamenn á bensíngjöfina og komu forystunni upp í 5 mörk.  Valsmenn virtust missa trúna á sigri í þessum leik á sama tíma.  Það breytti því þó ekki að Valsmenn skoruðu 3 mörk í röð og minnkuðu muninn í 28-26 og hefðu getað bætt við einu marki í viðbót.  Það var of lítið og of seint og Selfyssingar lokuðu þessum leik með nokkuð traustvekjandi hætti.Mörk Selfoss: Elvar Örn Jónsson 6/3, Hergeir Grímsson 5, Árni Steinn Steinþórsson 4, Haukur Þrastarson 4, Nökkvi Dan Elliðason 3, Guðni Ingvarsson 3, Atli Ævar Ingólfsson 2, Alexander Már Egan 1.Varin skot: Pawel Kiepulski 8 (32%), Sölvi Ólafsson 1 (10%).Nánar er fjallað um leikinn á  og  og .Eins og áður segir, þá eru strákarnir komnir í úrslit Íslandsmótsins.  Þar mun Selfoss mæta sigurvegurum í einvígi Hauka og ÍBV, staðan í því einvígi er 2-1 fyrir Haukum.

Sigur sóttur á Hlíðarenda

Selfoss mætti Valsmönnum í öðrum leik liðanna í undanúrslitum íslandsmótsins á Hlíðarenda í kvöld.  Fjórði leikur Selfyssinga í úrslitakeppninni og fjórði eins marks sigurinn, 31-32.Leikurinn byrjaði á miklum hraða, mikið skorað markverðirnar að verja vel og Valur náði frumkvæðinu.  Selfoss vann sig inn í leikinn og við það minnkaði hraðinn og Selfyssingar náðu frumkvæðinu í leik sem þó hélt áfram að vera jafn.  Selfyssingar leiddu með einu marki í hálfleik, 15-16.Í síðari hálfleik hélt Selfoss áfram að halda forustunni og bættu heldur í.  Værð kom yfir menn þegar Selfoss gátu aukið forskot sitt í 4 mörk og Valur breytti stöðunni úr 15-18 yfir í 19-18.  Patrekur tók leikhlé og skerpti á sínum mönnum sem komust aftur á rétta braut og sigldu heim eins marks sigri í leik þar sem munurinn varð aldrei aftur yfir 2 mörk.  Lokastaðan 31-32. Mörk Selfoss: Elvar Örn Jónsson 8/2, Haukur Þrastarson 6, Hergeir Grímsson 6, Árni Steinn Steinþórsson 5, Alexander Már Egan 4, Guðni Ingvarsson 2, Atli Ævar Ingólfsson 1.Varin skot: Sölvi Ólafsson 13 (30%).Nánar er fjallað um leikinn á  og  og .Leikur þrjú fer fram í Hleðsluhöllinni á mánudagskvöld kl 19:30.

Tómstundamessa Árborgar

Miðvikudaginn 8. maí mun Sveitarfélagið Árborg standa fyrir svokallaðri Tómstundamessu í íþróttahúsi Vallaskóla í samstarfi við grunnskóla, íþróttafélög, æskulýðsfélög og aðra aðila sem vinna með tómstundir barna á leik- og grunnskólaaldri í sveitarfélaginu.

Sigur á Val í fyrsta leik

Selfoss vann Val í framlengdum leik í Hleðsluhöllinni í gær, 35-34, en leikurinn var fyrsti leikur liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts Olísdeildar karla.Leikurinn byrjaði með miklum hraða en allt var í járnum.  Valur náði frumkvæðinu um miðbik hálfleiksins áður en Selfyssingar náðu svo að jafna leikinn aftur, staðan 17-17 í hálfleik.Í síðari hálfleik voru liðin aðeins mistækari, en boltinn datt meira fyrir Val í byrjun.  Rúmar 8 mínútur voru liðnar af hálfleiknum þegar fyrsta markið kom hjá Selfyssingum og aftur náðu Valsmenn forustunni, 4 mörk þegar mest var.  Selfoss vann sig hins vegar aftur inn í leikinn og jöfnuðu þegar um 8 mínútur voru eftir af síðari hálfleik.  Við tóku spennandi lokamínútur sem enduðu með því að Selfoss náði að knýja fram framlengingu.Í framlenginunni fóru Selfyssingar af stað af miklum krafti og skoruðu þrjú fyrstu mörkin.  Valsmenn náðu að saxa á þessa forustu, en höfðu það ekki af að klára hana.  Eins marks sigur í einum af mest spennandi leikjum tímabilsins staðreynd.Mörk Selfoss: Haukur Þrastarson 13, Elvar Örn Jónsson 5/2, Nökkvi Dan Elliðason 5/1, Árni Steinn Steinþórsson 5, Guðni Ingvarsson 4, Hergeir Grímsson 2, Guðjón Baldur Ómarsson 1.Varin skot: Sölvi Ólafsson 10 (33%), Pawer Kiepulski 4 (22%).Nánar er fjallað um leikinn á  og  og .Leikur tvö fer fram í Origo höllinni á Hlíðarenda á föstudagskvöldið kl 20:00.  Vinna þarf þrjá leiki í undanúrslitum til þess að komast áfram í úrslitarimmuna.  Það er því ljóst að það verður hið minnsta einn leikur enn í Hleðsluhöllinni sem fram fer á mánudagskvöld kl.

Fjórir Íslandsmeistarar

Íslandsmót yngri (U21) í júdó var haldið í sal júdódeildar Ármanns laugardaginn 13. apríl. Þar mætti júdódeild Selfoss með 17 keppendur, stóðu þeir sig allir mjög vel og komu heim með fjögur gull, fjögur silfur og þrjú brons.Sáust oft flottar glímur og flott köst og átti Claudiu Sohan eitt af flottustu köstum mótsins.

Íslandsmeistarar í formum og bardaga

Um helgina fór bikarmót TKÍ í bardaga og formum fram í Ármannsheimilinu.Þorsteinn Ragnar Guðnason hélt áfram að gera góða hluti í formum og uppskar þrenn verðlaun þ.e.

1 gull, 2 silfur og 1 brons hjá 4. flokki um helgina

Selfoss átti fjögur lið í 4. flokki á Íslandsmóti yngri flokka, sem fór fram í íþróttahúsinu í Digranesi um helgina. Fyrsta lið sem keppti var 4.