20.05.2019
Selfyssingar unnu ótrúlegan sigur á Haukum í Schenker höllinni á Ásvöllum í kvöld í framlengdum leik, 30-32. Þetta var þriðji leikur liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta og staðan því orðin 2-1 fyrir Selfoss.Liðin skiptust á að halda forustu fyrstu mínútur leiksins. Um miðbik hálfleiksins tóku Haukar frumkvæðið og náðu þriggja marka forskoti, Patrekur tók leikhlé og stöðvaði blæðinguna og endaði hálfleikurinn 15-14.Haukarnir héldu frumkvæðinu áfram þó munurinn væri áfram lítill. Þegar um 20 mínútur voru eftir af leiknum gerðu tóku Haukar svo afgerandi forystu, þegar 8 mínútur voru eftir var munurinn kominn upp í 5 mörk, 26-21. Þá settu Selfyssingar í lás í vörninni og Sölvi negldi fyrir markið, Selfoss náði að jafna leikinn og það var staðan þegar vejulegur leiktími rann út og því framlengt.Í framlengingu skiptust liðin á að gera mistök, enda bæði lið að spila hrikalega sterka vörn. Selfoss náðu þó að skora fyrsta og síðasta mark fyrri hálfleiks framlengingar og leiddu með einu marki. Í síðari hálfleik voru Selfyssingar sterkari og lönduðu góðum sigri, 30-32.Mörk Selfoss: Atli Ævar Ingólfsson 10/1, Elvar Örn Jónsson 6, Hergeir Grímsson 5, Haukur Þrastarson 4, Árni Steinn Steinþórsson 2, Guðjón Baldur Ómarsson 2, Nökkvi Dan Elliðason 1, Guðni Ingvarsson 1 og Alexander Már Egan 1.Varin skot: Sölvi Ólafsson 14 (54%), Pawel Kiepulski 7 (29%).Nánar er fjallað um leikinn á , og .Leikur 4 fer fram í Hleðsluhöllinni á miðvikudag kl 19:30. Það er ljóst að með sigri munu Selfyssingar lyfta Íslandsmeistaratitlinum í fyrsta skiptið, vinni Haukar verður oddaleikur á Ásvöllum á föstudagskvöldið. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta í vínrauðu í Hleðsluhöllina og láta í sér heyra.
19.05.2019
Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttumGrunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum verður haldið í 21.sinn þriðjudaginn 28.mai 2019.
18.05.2019
Selfoss tapaði naumlega gegn Haukum í leik tvö í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta í Hleðsluhöllinni í kvöld, 26-27.
16.05.2019
Örn Þrastarson mun halda áfram sem þjálfari meistaraflokks kvenna í handknattleik, en hann endurnýjaði samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss á dögunum.
Örn hefur verið viðloðandi handboltann á Selfossi alla sína tíð og hefur verið aðalþjálfari meistaraflokks kvenna undanfarin tvö ár, en liðið náði ekki að halda sæti sínu í Olísdeildinni á næsta ári.
16.05.2019
Það verða að minnsta kosti fjórir Selfyssingar meðal keppenda á Smáþjóðaleikunum sem fara fram í Svartfjallalandi dagana 27. maí til 1.
14.05.2019
Selfoss vann fyrsta leik sinn gegn Haukum í Schenkerhöllinni í úrslitaeinvíginu og er því komið 1-0 yfir. Leikurinn endaði 22-27 Selfoss í vil.Haukar höfðu frumkvæðið á upphafsmínútunum en um miðjan fyrri hálfleikinn náðu Selfyssingar frábærum 1-6 kafla þar sem þeir breyttu stöðunni úr 5-3 í 6-8.
14.05.2019
Það er ljóst að Selfyssingar munu keppa við Hauka um Íslandsmeistaratitilinn eftir að Haukar unnu ÍBV í oddaleik á laugardaginn. Haukarnir enduðu í fyrsta sæti í deildinni og eiga því heimavallaréttinn í einvíginu.
13.05.2019
Æfingar hefjast hjá okkur í lok maí, þær verða með svipuðu sniði og undarfarin ár, það verður skipt í eldri og yngri hóp.Guðbjartur Magnússon mun kenna eldri hópnum, og verða þær æfingar mánudaga og miðvikudaga frá kl.18:30-20.30.
13.05.2019
Selfoss náði í sín fyrstu stig í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu í kvöld þegar liðið sótti HK/Víking heim í Kórinn í Kópavogi.
13.05.2019
Um helgina fór fram 6.flokks mót á Akureyri. Þar vann 6. flokkur kvenna eldri alla sína leiki og eru þar með komnar í efstu deild. Aldeilis flottur árangur hjá stelpunum fyrir norðan.Áfram Selfoss!.