Selfyssingar í 4. sæti á Norden Cup

Strákarnir í 2001 árganginum í handbolta brugðu undir sig betri fætinum um jólin og tóku þátt í Norden Cup í Svíþjóð en á mótið er boðið titilhöfum viðkomandi árgangs frá öllum Norðurlöndunum.Það er skemmst frá því að segja að strákarnir enduðu í 4.

Hátíðahöldum á þrettándanum frestað

Vegna óhagstæðrar veðurspár hefur hefðbundinni þrettándagleði á Selfossi sem vera átti þriðjudaginn 6. janúar verið frestað um óákveðinn tíma.

Hanna spilar áfram með Selfoss

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir leikmaður Selfoss og markahæsti leikmaður Olís deildarinnar var í Noregi við æfingar fyrir jól. Í viðtali við handboltavefinn  sagði hún frá ferðinni og framtíðinni.Við viðtalið má bæta að Hanna fékk strax í kjölfarið gott tilboð frá norsku liði sem vildi að hún kæmi strax út núna um áramótin.

Guðmunda Brynja og Daníel Jens íþróttafólk Árborgar

Knattspyrnukonan Guðmunda Brynja Óladóttir og taekwondomaðurinn Daníel Jens Pétursson, bæði úr Umf. Selfoss, eru íþróttakona og íþróttakarl Sveitarfélagsins Árborgar árið 2014. Uppskeruhátíð Íþrótta- og menningarnefndar Árborgar var haldin í hátíðarsal Fjölbrautaskóla Suðurlands þriðjudagskvöldið 30.

Hátíðahöld á þrettándanum

Jólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði þriðjudaginn 6. janúar. Gleðin verður með hefðbundnu sniði og sér Ungmennafélag Selfoss um framkvæmdina.

Selfyssingar unnu sveitakeppni HSK

Árleg sveitakeppni HSK í skák fór fram í Selinu á Selfossi miðvikudagskvöldið 17. desember. Löng hefð er fyrir þessari keppni og leggja aðildarfélög alla jafna nokkuð á sig til að taka þátt.  Í ár voru það sex sveitir sem tefldu fram keppendum.

Opið fyrir umsóknir í Ferðasjóð íþróttafélaga

Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga hefur verið opnað. Frestur til að skila inn umsóknum vegna keppnisferða á árinu 2014 rennur út á miðnætti mánudaginn 12.

Nýárskveðja frá Ungmennafélagi Selfoss

Stjórnir og starfsfólk Ungmennafélags Selfoss senda Selfyssingum öllum nær og fjær hugheilar óskir um farsæld á nýju ári og þakka samstarfið á liðnu ári.Við hlökkum til komandi árs og þeirra tækifæri sem það ber í skauti sér.

Átta Selfyssingar í U-15

Hvorki fleiri né færri en átta Selfyssingar eru í æfingahópi Heimis Ríkarðssonar landsliðsþjálfara u-15 ára landsliðs karla. Leikmennirnir sem um ræðir eru Alexander Hrafnkelsson, Aron Emil Gunnarsson, Bergsveinn Ásmundsson, Haukur Þrastarson, Haukur Páll Hallgrímsson, Sölvi Svavarsson, Þorsteinn Freyr Gunnarsson og Valdimar Jóhannsson og eru þetta allt drengir fæddir árið 2001.Hóparnir munu æfa helgina 2.-4.

Hanna í úrvalsliði Olís-deildarinnar

Í gær var tilkynnt um úrvalslið kvenna á haustönn í Olís deild kvenna. Selfyssingurinn Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir sem farið hefur á kostum í Olís deildinni er að sjálfsögðu í liðinu en hún er markahæsti leikmaður deildarinnar.Stefán Arnarson þjálfari Fram var valinn besti þjálfarinn og var Sigurbjörg Jóhannsdóttir leikmaður Fram valin besti leikmaðurinn.Eftirfarandi leikmenn eru í úrvalsliðinu:Markvörður: Florentina Stanciu, Stjarnan Línumaður: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Grótta Vinstra Horn: Ásta Birna Gunnarsdóttir, Fram Vinstri Skytta: Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Selfoss Hægra Horn: Karólína Bæhrenz Lárudóttir, Grótta Hægri Skytta: Thea Imani Sturludóttir, Fylkir Miðjumaður: Sigurbjörg Jóhannsdóttir, FramBesti þjálfarinn: Stefán Arnarson, FramBesti leikmaður: Sigurbjörg Jóhannsdóttir, Fram---Mynd frá verðlaunaafhendingu af vef HSÍ.